Franskir kjósendur refsa Sarkozy
Franskar útgönguspár gefa til kynna að UMP mið-hægri flokkur Nicolas Sarkozy forseta Frakklands hafi beðið lægri hlut í fyrri umferð héraðskosninganna líkt og spáð hafði verið.
Sarkozy og kona hans Carla Bruni gengu glaðbeitt til kosninga í dag, þar sem þau brostu við stuðningsmönnum og virtust hvorki láta hrakfararspár né sögur um meint framhjáhald og skilnað á sig fá.
Samkvæmt spám benti allt til þess að Sósíalistar fengju 30% greiddra atkvæða en UMP flokkurinn um 26,5% og þykir það til vitnis um að kjósendur séu með þessu að refsa ríkisstjórn Sarkozy fyrir skort á árangri.
Sarkozy hefur sagt að kosningarnar eigi að snúast um staðbundnar áherslur en hann muni þó taka mark á því hvar kjósendur ákveða að setja atkvæði sitt.
Forsetinn glímir nú meðal annars við að vinna á atvinnuleysi sem mælist um 10% auk þess sem miklar deilur hafa spunnist um launamál í stjórn hans. Persónulegar vinsældir Sarkozy eru sagðar hafa dalað þó nokkuð að undanförnu og mælist ánægja með störf hans nú í um 36%.
Þetta eru síðustu kosningarnar á landsvísu í Frakklandi fyrir þing- og forsetakosningar árið 2012. Sósílistar stjórna nú þegar 20 af 22 héruðum Frakklands og vonast til að niðurstöður sýni að þeir hafi nú náð þeim öllum. Er talið að niðurstaðan geti haft mikil áhrif á gengi Sarkozy í næstu forsetakosningum. Góð niðurstaða sósíalista myndi einnig auka vonir flokksleiðtogans Martine Aubry um að verða fulltrúi flokksins í forsetakosningunum árið 2012.
Síðari umferð héraðs kosninganna fer fram 21. mars en kosningaþátttaka í þessari umferð virðist hafa verið frekar dræm.
Erlent »
Föstudagur, 10.2.2012
- Reyna að losna við Grikki
- Árás á vefsvæði CIA
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
- Mynd ársins tekin í Jemen
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
Fimmtudagur, 9.2.2012
-
Undirbúa olíudælingu úr skipinu
- Átta ára barn meðal látinna
- Leyfa fyrsta kjarnorkuverið frá 1978
- Ætla ekki að færa andstöðunni vopn
- Borin kennsl á 162 lík
- Leggja fram kvörtun hjá SÞ
- Mossad þjálfar andófsmenn í Íran
- Verkalýðsfélög boða verkföll
- Færri fæðingar í Danmörku
- Garzón sakfelldur
- Rússar efins um þjóðabandalag
- Grikkir hafa náð niðurstöðu
- Dóná ísilögð í sex löndum
-
Mannskæð bílsprengja í Taílandi
- Slóvakar styðja Grikki ekki frekar
- Myrti stuðningsfulltrúa í Danmörku
- Cameron vill læra af Íslandi
-
Handtekinn forseti kom til Íslands
-
Bygging stóðst ekki kröfur
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Erlent Josef Motzfeldt nýr formaður Vestnorræna ráðsins
- Miðvikudagur, 5. maí 2010, Erlent Skipulagði barnaníðsferðir
- Föstudagur, 1. janúar 2010, Erlent Boðar til fundar um Jemen
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Erlent Fellibylur gekk yfir Fiji eyjar
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Erlent Mikill niðurskurður í Bretlandi
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá




































