Segir verkfall óréttlætanlegt

Hluti flugflota hins breska flugfélags British Airways. stækka

Hluti flugflota hins breska flugfélags British Airways. Suzanne Plunkett

Samgönguráðherra Breta gagnrýnir harðlega fyrirhugað verkfall 12.000 flugfreyja og flugþjóna hjá flugfélagi British Airways og segir það "algjörlega óréttlætanlegt."

Í viðtali við BBC í dag sagði ráðherrann Adonis að verkfallið kæmi ekki aðeins til með að valda flugfarþegum erfiðleikum sem væru í engu samræmi  við deiluefnið. Heldur ógnaði það einnig framtíð eins glæstasta fyrirtækis Breta. Verkfallið væri algjörlega óréttlætanlegt og hann hvatti til þess að farið yrði í uppbyggilegar samningaviðræður við félagið.

„Við skulum hafa það á hreinu að það liggur ótrúlega mikið undir þessu verkfalli og ég er algjörlega á móti þessu verkfalli,“sagði Adonis.

Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, var öllu dempaðri í ummælum um fyrirhugað verkfall og sagði nauðsynlegt að deiluaðilar settust að samningaborðinu til að forða almenningi frá óþægindum án þess þó að nýr samningur kæmi niður á efnahagslífinu.

Vill að ráðherrann þrýsti á British Airways

Talsmaður Unite, félags starfsmannanna, sagði ummæli breska samgönguráðherrans sýna að hann væri illa upplýstur um málið. Það væri samningsvilji til staðar þeirra hálfu og þau vildu komast hjá því að koma þyrfti til verkfalls. Þá hvatti hann ráðherrann til að þrýsta opinberlega á talsmenn BA um að koma aftur að samningaborðinu með tilboð sem þeir lögðu fram í vikunni. Forsvarsmenn BA drógu tilboðið til baka á föstudag eftir að hafa sagt að það væri háð því að komist yrði hjá verkfalli.

Talsmenn BA taka undir orð samgönguráðherrans og segja fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir í engu samræmi við þá hagsmuni sem liggi undir. Starfsmennirnir séu best launaðir breskra flugfélaga.

Þjálfa starfmenn til að vinna í verkfalli

Ferðaáætlanir þúsunda Breta eru í uppnámi verði af verkfallinu þann 20. mars sem er fyrirhugað að standi í þrjá daga. Annað fjögurra daga verkfall er einnig boðað þann 27. mars.  Talsmenn Unite hafa hins vegar lýst því yfir að félagsmenn verði ekki í verkfalli yfir páskana.

Til að bregðast við yfirvofandi verkfalli segjast stjórnendur BA hafa þjálfað starfsfólk í stað verkfallsmanna og að verði af verkfalli verði hægt að halda sem mestu af áætlunarflugi áfram.

Hótanir um verkföll flugfreyja og flugþjóna British Airways hafa vofað yfir frá því að félagið tilkynnti í nóvember um uppsagnir og frystingu launa í tvö ár frá og með 2010.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands.

Segja Sarkozy misnota almannafé

10:09 Franski sósíalistaflokkurinn hyggst leggja fram kæru í dag á hendur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, um að hann hafi notað almannafé til að fjármagna kosningabaráttu sína. Sarkozy hefur reyndar ekki tilkynnt að hann sækist eftir endurkjöri, en búist er við að hann tilkynni framboð sitt á næstunni. Meira »
Alexander Lukashenko, forseti Hvíta-Rússlands.

Segja Pólverja hafa stutt tilraun til valdaráns

10:09 Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi héldu því fram í gær sunnudag að ráðamenn í Póllandi hefðu fjármagnað tilraun til valdaráns í Hvíta-Rússlandi sem leiddi til blóðugra átaka eftir forsetakosningarnar sem fram fóru í landinu 19. desember 2010. Meira »

„Lömbin þagna“ morðinginn úr landi

09:46 Beiðni bresks karlmanns, sem fundinn var sekur fyrir að pynta og nauðga ungri konu um að fá að dvelja í Ástralíu, hefur verið hafnað. Glæpinn framdi maðurinn á þann hátt sem helst þykir minna á kvikmyndina „Lömbin þagna“ Meira »

Átök í Aþenu myndskeið

Niðurskurður samþykktur á sama tíma og Aþena brennur
08:37 Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Aþenu í nótt eftir að gríska þingið samþykkti niðurskurðaráætlanir stjórnvalda. Víða var kveikt í byggingum í Aþenu og brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Meira »

Hættur vegna eyðslu ríkisins

Frá Kúveit-borg.
06:41 Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarinn aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP. Meira »

Árásir í sólarupprás í Homs

Frá Sýrlandi
08:44 Stjórnarherinn í Sýrlandi hélt áfram árásum sínum á borgina Homs í morgun. Sýrlensk stjórnvöld hafa hafnað tillögu Arababandalagsins um að senda friðarsveitir til landsins. Meira »

Skortur á menntuðum kennurum í ESB

Við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
07:07 Ríki Evrópusambandsins eru farin að finna fyrir skorti á menntuðum kennurum í vaxandi mæli samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Fram kemur að staðan í þeim efnum fari stöðugt versnandi og að framkvæmdastjórn sambandsins hafi séð ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á þessum vanda. Meira »

Grikkir samþykkja niðurskurð

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.
Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
Í gær, 21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
Í gær, 19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
Í gær, 17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
Í gær, 16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
Í gær, 17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
Í gær, 17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
Í gær, 16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ruggustóll
Til sölu- . Keyptur í Fríðu frænku. Verð 15 þús. Uppl. í s. 867-4183 ...
Í rólegheitum í miðbæ Reykjavíkur.
Á Laugavegi þakíbúð allt sem til þarf ásamt heitum potti. Áttu punkta á www.poi...
GISTING Á SVEITASETRI
SVEITASETRIN Kjós og Grímsá. Hentugt fyrir hópa. Nánari upplýsingar: Björn Þór, ...
Húsbíll til sölu. Peugeot 290 dísel 2500cc ár 1991 ekinn 236.þús
Einstaklega vel með farinn húsbíll fluttur inn notaður ár 2000. Hjónarúm, ný T...
 
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri óskast á komandi s...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012021319 VI...
Uppboð - munir

None...
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012020819 III ...