Vanvirðing við helför gyðinga

Minnismerki um helför gyðinga voru vanvirt með and-gyðinglegu veggjakroti á sama tíma og þess er minnst að 67 ár eru frá því að Krakow "gettóið" svokallaða var "leyst upp" með aftökum og nauðungarflutningum í  útrýmingarbúðir nasista.

„Út með gyðinga" og „Hitler góður“ er meðal þess sem spreyjað var á  minnismerki um helförina, við fyrrum útrýmingarbúðir nastista í Plazow við Krakow. Unnið var að því að þrífa í burtu en lögregla leitaði enn ódæðismannanna. 

Talsmaður lögreglu sagði brotið tvíþætt. Annars vegar vanvirðingu minnismerkja og hins vegar brot gegn skoðunum, trú og stað þar sem trú væri iðkuð. Allt að fimm ára fangelsi lægi við brotunum.

Mynd Steven Spielberg, Schindler's list, byggðist á verkum athafnamannsins Schindler sem bjargaði lífi yfir þúsund Pólverja sem höfðu lent í útrýmingarbúðunum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá mótmælum í Sýrlandi.

Öryggisráðið fordæmir stjórn Sýrlands

21:54 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun, þar sem sýrlenska ríkisstjórnin er harðlega fordæmd fyir aðild sína að fjöldamorðunum í bænum Houla í Sýrlandi. Ráðið krefst þess að þeir sem beri ábyrgð á ódæðisverkunum verði látnir svara til saka. Meira »
Frá mótmælum í Sýrlandi

Kenna eftirlitsmönnum SÞ um

21:40 Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi í gær auki mjög þrýsting á þá eftirlitsmenn SÞ sem eru í landinu. Þeim hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi í eftirlitshlutverki sínu. Meira »

Getur ekki útskýrt verknaðinn

Frá vettvangi morðanna.
21:27 Finnski skotmaðurinn, sem myrti tvö ungmenni í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt, segist iðrast gjörða sinna en getur enga grein gert fyrir þeim. Meira »

Héldu stúlku sem þræl í átta ár

20:21 Bosnísk hjón héldu þýskri stúlku sem þræl í átta ár, lokuðu hana inni og meinuðu henni að umgangast annað fólk. Stúlkan, sem er 19 ára, er nú undir læknishendi. Meira »

Rússar efast um sekt stjórnarinnar

Frá mótmælum í Sýrlandi.
19:05 Rússnesk yfirvöld segjast efast um að sýrlensk stjórnvöld beri ábyrgð á fjöldamorðunum í bænum Houla í gær, en þar látust 116 manns, þar af fjöldi barna. 300 eru særðir. Meira »

Fimm létust í loftárás

Frá Pakistan.
21:17 Að minnsta kosti fimm pakistanskir uppreisnarmenn létu lífið í loftárás bandaríska hersins sem gerð var skammt frá landamærum Pakistan að Afganistan, í Waziristan héraði þar sem Talibanar og hryðjuverkasamtökin al-Qaeda eru með umfangsmikla starfsemi. Meira »

Þeir sem ekki reykja fá meira frí

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga.
19:20 Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga. Heilbrigðisráðherra Noregs, Anne-Grete Strøm-Erichsen, segist styðja tiltækið. Meira »

Danir hafa áhyggjur af spekileka

18:49 Á hverju ári flytja rúmlega 20.000 Danir úr landi til náms eða starfa og sífellt fleiri vel menntaðir Danir kjósa að snúa ekki aftur til síns heima. Flestir þeirra eru verkfræðingar. Meira »

Í facebookstríði við Lagarde

Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra AGS, sárreiðir vegna ummæla hennar um skuldavanda Grikklands.
18:29 Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ævareiðir vegna ummæla hennar um að hún velti því fyrir sér hvers vegna þeir væru svo fúsir til að komast hjá því að greiða skatta. Grískur almenningur hefur herjað á Lagarde á samskiptasíðunni Facebook í dag. Meira »

Fundu líkin eftir sjö vikur í snjó

Frá björgunaraðgerðum í Siachen Glacier í Kasmírhéraði í Pakistan.
17:16 Björgunarsveitir í Pakistan komust loksins að herbúðum á Siachen-jökli í hinu fjalllenda Kasmírhéraði, þar sem snjóflóð féll fyrir meira en sjö vikum. Björgunarmennirnir þurftu að grafa göng í gegnum geysiháa snjóskafla með aðstoð stórvirkra vinnuvéla. 140 manns létust í flóðinu. Meira »

Segjast ekki bera ábyrgð myndskeið

Damascus 'not responsible' for Houla massacre
17:37 Sýrlensk stjórnvöld hafna fullyrðingum um að þau beri ábyrgð á dauða rúmlega 90 óbreyttra borgara sem voru myrtir í bænum Houla í gær. Þriðjungur þeirra látnu er börn. Meira »

Var í skóla með fórnarlömbunum

Víða var flaggað í hálfa stöng í Finnlandi í dag vegna morðanna.
16:20 Maðurinn, sem skaut á hóp fólks í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt og myrti tvö ungmenni, var kunnugur þeim. Hann gekk í sama skóla og þau tvö sem hann myrti, en var hættur í skóla fyrir nokkru. Meira »

Stokkhólmur, Gautaborg eða Malmö?

Loreen hin sænska sem vann Evróvisjónkeppnina í gær.
16:02 Borgaryfirvöld í Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö hafa öll lýst sig reiðubúin til að halda Evróvisjónkeppnina á næsta ári, en hún verður haldin 18. maí. Keppnin var síðast haldin í Svíþjóð fyrir 12 árum og þá var hún í Stokkhólmi, í tónleika- og íþróttahöllinni Globen. Meira »

Sænskur unglingur varð fyrir skoti í Tyrklandi

Frá borginni Antalya í Tyrklandi.
15:23 17 ára sænskur drengur var skotinn í bakið síðastliðinn þriðjudag þegar hann var á ferðalagi í Tyrklandi með fjölskyldu sinni. Hann lá á sólbekk við sundlaug þegar hann varð fyrir skotinu og var í kjölfarið fluttur í skyndi á sjúkrahús í borginni Antalya þar sem fjölskyldan var í fríi og undirgekkst uppskurð sem tókst vel. Meira »

Lady Gaga aflýsir tónleikum í Jakarta

Tónleikum Lady Gaga mótmælt í Jakarta.
13:18 Lady Gaga hefur aflýst fyrirhuguðum tónleikum í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í kjölfar hótana öfgafullra íslamista um að öryggi hennar og tónleikagesta yrði ógnað færu þeir fram. Meira »

Vandi skekur Vatikanið

Úr Vatikaninu, Péturskirkjan.
15:55 Páfagarður reynir enn að finna út hver standi á bak við umfangsmikinn leka á upplýsingum úr Vatikaninu undanfarið. Trúnaðarskjölum um viðkvæm mál er varða kirkjuna hefur markvisst verið lekið í fjölmiðla og hafa menn nú þegar verið handteknir án þess að vitað sé með nokkurri vissu um hver sé sökudólgurinn. Meira »

Hvetur til frelsisstríðs

Mótmælt í Sýrlandi.
15:12 Burhan Ghalioun, formaður Sýrlenska þjóðarráðsins, hvatti í dag til „frelsisstríðs“ gegn ríkisstjórn landsins, sem yrði háð þar til Sameinuðu þjóðirnar grípa til aðgerða. SÞ hefur heimild til hernaðarumsvifa vegna ákvæða svokallaðs sjöunda kafla. Meira »

Blóðbaðsins minnst

Frá Torgi hins himneska friðar, Tianamen torgi, í Peking í dag.
12:48 Hundruð lýðræðissinna fylktu liði í Hong Kong í dag til að minnast þess að 23 ár eru senn liðin frá því mótmæli stúdenta á Torgi hins himneska friðar í Peking voru brotin á bak aftur af stjórnvöldum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Hjólbarðar til sölu
Er með fjögur Goodyear dekk gróft munstur, stærð 33x12.5R17LT ekin ca 12-15þús k...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
Sparneytinn bíll óskast
Óska eftir að kaupa sparneytinn, óryðgaðan bíl á verðbilinu 200-500.000. Ekki e...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...