Alvarlegasta deilan í 35 ár
Áætlanir Ísraelsstjórnar um frekari uppbyggingu í austurhluta Jerúsalem hafa hleypt hugmyndum um friðarviðræður í uppnám. Reuters
Sendiherra Ísraels í Bandaríkjunum telur samskipti Ísraels og Bandaríkjanna ekki hafa verið stirðari í 35 ár að sögn ísraelskra fjölmiðla. Deilan er til komin vegna tilkynningar ísraelskra stjórnvalda um byggingu nýrra landnemabyggðar í austurhluta Jerúsalem á sama tíma og Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, var í heimsókn í Ísrael.
Bandarísk stjórnvöld bíða nú formlegs svars frá Ísraelsstjórn vegna deilunnar, en Bandaríkjastjórn hafði mánuðina á undan lagt mikla vinnu í að ná Ísraelum og Palestínumönnum að samningaborðinu á ný eftir að upp úr slitnaði í lok árs 2008. Leiðtogar Palestínumanna draga hins vegar nú í efa að friðarviðræður hefjist á næstunni.
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels lýsti því yfir á ísraelska þinginu í dag að hann vildi friðarumræður og vonaði að Palestínumenn myndu ekki setja fram nýja fyrirvara við slíkum viðræðum. „Enginn ríkisstjórn hefur á sl. 40 árum takmarkað uppbyggingu hverfa í Jerúsalem,“ sagði Netanyahu. „Uppbygging gyðingabyggða í Jerúsalem skaðar ekki Araba í Austur-Jerúsalem, né kostar þá neitt.“
Philip Crowley, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði Hillary Clinton utanríkisráðherra hafa óskað formlegs svars frá Netanyahu við þeim áhyggjum sem hún hefði látið uppi. Crowley ítrekaði þó að Bandaríkin styddu enn Ísrael. „Ísrael er hernaðarlega mikilvægur bandamaður Bandaríkjanna og mun verða það áfram.“
Ashton barónessa, sem fer fyrir utanríkismálum Evrópusambandsins, telur ákvörðun Ísraela hafa teflt friðarviðræðum í tvísýnu, að því er segir á fréttavef BBC. En ESB hefur þegar fordæmt þá ákvörðun Ísraela að fjölga byggð í austurhluta Jerúsalem.
Ísraelsk stjórnvöld drógu til að byrja með úr því hve stirt sambandið við Bandaríkin nú er. Michael Oren, sendiherra Ísraels í Bandaríkjunum, sagði hins vegar í símaviðtali við ísraelska fjölmiðla að deilan væri grafalvarleg „og við stefnum inn í mjög erfitt tímabil í samskiptum okkar.“
Oren var á föstudag boðaður á fund hjá bandarískum stjórnvöldum og ávíttur vegna málsins, að því er ísraelski fréttavefurinn Ynet News greindi frá. Hefur vefurinn eftir Oren að samskipti þjóðanna hafi ekki verið stirðari frá því 1975. En það ár krafðist Henry Kissinger, þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess að Ísraelar drægju herlið sitt frá Sínaískaga þar sem herinn hafði verið frá því í sex daga stríðinu 1967.


































