Fuglaflensa í Rúmeníu

Fuglaflensuveira hefur fundist á afskekktu hænsnabúi í Rúmeníu. stækka

Fuglaflensuveira hefur fundist á afskekktu hænsnabúi í Rúmeníu. Reuters

Bráðsmitandi fuglaflensuveira (H5N1) hefur fundist í Rúmeníu. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun staðfesta í dag hættusvæði sem rúmensk stjórnvöld hafa skilgreint vegna veirunnar. Hún fannst í afskekktu kjúklingabúi í Letea í Tulcea héraði, við óshólma Dónár nálægt landamærum Úkraínu.

Rannsóknastofa rúmanska ríkisins staðfesti í gær að veikin stafaði af hinni bráðsmitandi H5N1 inflúensuveiru sem einnig er kölluð fuglaflensa. Rúmönsk stjórnvöld brugðust strax við samkvæmt viðbragðsáætlun ESB til að hamla útbreiðslu veikinnar, að því er fram kemur á fréttavef ESB.

Öllum fuglum á fuglabúinu verður slátrað og sett er upp varnarsvæði 3 km út frá  fuglabúinu og eftirlitssvæði sem nær 10 km frá því. Innan þess gilda strangar reglur um umferð. Ytra eftirlitssvæðið er álitið vera svæði mikillar áhættu. Þar fyrir utan er svo svæði þar sem smithætta er talin minni. 

Þetta er fyrsta tilfelli fuglaflensu sem fundist hefur í ESB í eitt ár. Villt önd með fuglaflensu fannst í Þýskalandi í mars í fyrra.

Fuglaflensan gerir víða vart við sig

Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði landlæknis, sagði að fuglaflensa hafi gert vart við sig í Egyptalandi og sé aftur að koma upp í Asíu, t.d. í Indónesíu, eftir að á henni hægði um tíma.  Flensan hefur bæði fundist þar í fuglum og mönnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.

Grikkir samþykkja niðurskurð

22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess hægt verið að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjöldi einstaklinga hefur látið lífið í áttökum mótmælenda og stjórnarhersins í Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
í gær Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hefur borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
í gær Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi óskast
Er að leita að hjólhýsi á allt að 1.4 miljón. Vil ekki kojuhús, verður að vera h...
Píanó, gítar og blokkflauta
Kenni klassík, popp og jass á píanó. Get einnig bætt við mig byrjendum á gítar...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
VÖRULAGER OG SKRIFSTOFUR
Vörulager og skrifstofur. Til leigu eitt eða fleiri skrifstofu- herbergi ásamt v...
 
Viðtöl vegna úttektar á or 01420
Tilkynningar
TILKYNNING Úttektarnefnd Orkuveitu Re...
Fjárfestar óskast spennandi og vaxandi f
Ýmislegt
Fjárfestar óskast Spenna...
Úthlutun byggðarkvóta
Tilkynningar
Auglýsing vegna úthlu...
Patreksfjörður rafmagn
Tilboð - útboð
Útboð Vesturbyggð P...