Úthelltu blóði úr flöskum fyrir lýðræðið

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Þúsundir mótmælenda í Bankok í Tælandi úthelltu þrjúhundruð lítrum af eigin blóði úr flöskum fyrir utan skrifstofu forsætisráðherra landsins og kölluðu það fórn fyrir lýðræðið.

Ekkert lát virðist vera á mótmælunum í Tælandi sem hófust á föstudag þegar andstæðingar ríkisstjórnarinnar kröfðust þess að þingi yrði slitið og gengið til kosninga og eru hermenn í viðbragðsstöðu víðsvegar um Bankok borg.

Núverandi forsætisráðherra Abhisit Vejjajiva hefur hingað til hafnað öllum kröfum um slíkt og var blóðfórninni ætlað að auka þrýsting á ríkisstjórnina til að hún segði af sér. 

Heilbrigðisstarfsmenn sögðu blóðfórnina sóun og kölluðu hana óheilsusamlega.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands.

Segja Sarkozy misnota almannafé

10:09 Franski sósíalistaflokkurinn hyggst leggja fram kæru í dag á hendur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, um að hann hafi notað almannafé til að fjármagna kosningabaráttu sína. Sarkozy hefur reyndar ekki tilkynnt að hann sækist eftir endurkjöri, en búist er við að hann tilkynni framboð sitt á næstunni. Meira »
Alexander Lukashenko, forseti Hvíta-Rússlands.

Segja Pólverja hafa stutt tilraun til valdaráns

10:09 Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi héldu því fram í gær sunnudag að ráðamenn í Póllandi hefðu fjármagnað tilraun til valdaráns í Hvíta-Rússlandi sem leiddi til blóðugra átaka eftir forsetakosningarnar sem fram fóru í landinu 19. desember 2010. Meira »

„Lömbin þagna“ morðinginn úr landi

09:46 Beiðni bresks karlmanns, sem fundinn var sekur fyrir að pynta og nauðga ungri konu um að fá að dvelja í Ástralíu, hefur verið hafnað. Glæpinn framdi maðurinn á þann hátt sem helst þykir minna á kvikmyndina „Lömbin þagna“ Meira »

Átök í Aþenu myndskeið

Niðurskurður samþykktur á sama tíma og Aþena brennur
08:37 Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Aþenu í nótt eftir að gríska þingið samþykkti niðurskurðaráætlanir stjórnvalda. Víða var kveikt í byggingum í Aþenu og brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Meira »

Hættur vegna eyðslu ríkisins

Frá Kúveit-borg.
06:41 Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarinn aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP. Meira »

Árásir í sólarupprás í Homs

Frá Sýrlandi
08:44 Stjórnarherinn í Sýrlandi hélt áfram árásum sínum á borgina Homs í morgun. Sýrlensk stjórnvöld hafa hafnað tillögu Arababandalagsins um að senda friðarsveitir til landsins. Meira »

Skortur á menntuðum kennurum í ESB

Við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
07:07 Ríki Evrópusambandsins eru farin að finna fyrir skorti á menntuðum kennurum í vaxandi mæli samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Fram kemur að staðan í þeim efnum fari stöðugt versnandi og að framkvæmdastjórn sambandsins hafi séð ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á þessum vanda. Meira »

Grikkir samþykkja niðurskurð

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.
Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
Í gær, 21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
Í gær, 19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
Í gær, 17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
Í gær, 16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
Í gær, 17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
Í gær, 17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
Í gær, 16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
FORD FIESTA TREND
Ford Fiesta trend Nýskr. 6/2007, ekinn 90 þ. km, bensín, 5 g...
PARSUN UTANBORÐSMÓTORAR 2,6 - 5- 15 -25 HP Á LAGER
Erum að fara panta, getum tekið niður óskir um aðrar stærðir. Einnig hægt að fá...
16" Bens álfelgur til sölu. Ótrúlegt verð.
Líta út eins og nýjar. Voru notaðar bara á sumrin fyrir Bens E320 2007. Verð : ...
DODGE DAKOTA LARAMIE
Dodge Dakota Laramie Quad Cab 4x4 . Nýskr. 1/2005, ekinn 89 þ. km, ...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Skipstjóri
Önnur störf
Skipstjóri Skipstjóri óskast á komandi s...
Umsjónarkennari
Grunn-/framhaldsskóla
Laus staða í Grunnskóla Snæfellsbæja...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl...