Vestrænir sendimenn gagnrýna gabbfrétt
Vestrænir sendimenn hafa bæst í hóp þeirra, sem gagnrýna harðlega gabbfrétt sjónvarpsstöðvar í Georgíu um helgina um að rússneski herinn hefði gert innrás í landið. Fréttin olli miklu uppnámi meðal almennings en stjórnarandstæðingar fullyrða að hún sé runnin undan rifjum stjórnar landsins.
Í fréttinni var fullyrt, að forseti landsins, Mikheil Saakashvili, hefði verið myrtur og stjórnarandstaðan slegist í lið með innrásaröflunum. Áður en fréttin var send út á einkareknu georgísku sjónvarpsstöðinni Imedi var birt örstutt yfirlýsing þar sem fram kom að um eftirlíkingu mögulegra atburða væri að ræða. Fréttin sjálf virkaði hins vegar mjög raunveruleg, enda myndskreytt með myndum úr innrás rússneskra hersveita í Georgíu í ágúst 2008 og henni fylgdi engin viðvörun um að um gabb væri að ræða.
Sendiherrar Breta og Frakka í Georgíu fordæmdu sjónvarpsstöðina í dag. Sagði Denis Keefe, sendiherra Bretlands, að málið vekti efasemdir um ábyrga og sjálfstæða fjölmiðla í Georgíu. Eric Fournier, sendiherra Frakka, sagði að fréttin hefði verið flutt af algeru ábyrgðarleysi, einkum fullyrðingar um að tilteknir stjórnarandstæðingar hefðu gengið til liðs við innrásaröflin.
John Bass, sendiherra Bandaríkjanna í Georgíu, hefur áður gagnrýnt sjónvarpsstöðina, sem hefur náin tengsl við Saakashvili. Forsetinn virtist í fyrstu verja gabbfréttina en sagði í gær að fréttin hefði verið marklaus og jafnvel skaðleg.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Óraunsæ stjórnvöld. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Óþokkar eða snillingar?
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 14. mars 2010, Erlent Gabbfrétt vekur reiði í Georgíu
- Föstudagur, 29. maí 2009, Erlent Átök í Tbilisi
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Erlent Eva Joly ber forseta Gabon ekki vel söguna
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Erlent Hondúras einangrast
- Föstudagur, 13. febrúar 2009, Erlent Í stríði við stjórnvöld í Kreml
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































