Hótar að senda Armena úr landi
Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. Reuters
Forsetisráðherra Tyrkja Recep Tayyip Erdogan hefur hótað að vísa 100.000 armenskum innflytjendum úr landi en nú er talið að um 170.000 Armenar búi í landinu. En forsætisráðherrann virðist enn æfur vegna viðurkenninga Svía og Bandaríkjamanna á að þjóðarmorð hafi verið framið á Armenum í landinu af Ottómönum árið 1915.
Í viðtali við BBC sagði Erdogan að af um 170.000 Armenum sem byggju í landinu væru 70.000 þeirra tyrkneskir ríkisborgarar. Í dag léti ríkisstjórnin sem hún sæi ekki hina 100.000 sem væru ólöglegir innflytjendur en það gæti hinsvegar breyst á morgun og þeim skipað að fara til heimalandsins.
Erdogan sagði viðurkenningar Svía og Bandaríkjamanna einnig meiðandi fyrir Armena og málið væri í pattstöðu. Áður hafði Tigran Sarkisian forsætiráðherra Armena sagt á þingi að yfirlýsingar Erdogans gerðu lítið til að bæta samskipti þjóðanna.
Þjóðunum ber ekki saman um hve margir Armenar voru drepnir í Tyrklandi á tímum fyrri heimsstyrjaldarinnar þegar ríki Ottómana var að liðast í sundur. Armenar segja nær eina og hálfa milljóna manna hafa verið myrta en Tyrkir telja að hálf milljón sé nærri lagi. Auk þess hafi einnig fjöldi Tyrkja týnt lífi.
Nú hafa yfir tuttugu ríki samþykkt ályktanir þess efnis að framið hafi verið þjóðarmorð á Armenum, en þeir hafa barist fyrir slíkri viðurkenningu á alþjóðavettvangi.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Erlent Tyrkneski sendiherrann kallaður heim frá Svíþjóð
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Erlent Svíar viðurkenna að framið hafi verið þjóðarmorð á Armenum
- Sunnudagur, 30. maí 2010, Erlent Móðgaður forsætisráðherra
- Laugardagur, 25. apríl 2009, Erlent Tyrkir ósáttir við Obama
- Mánudagur, 6. apríl 2009, Erlent „Bandaríkin munu aldrei heyja stríð við íslam"
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































