Tveir handteknir eftir pókerrán
Einn maður gaf sig fram við lögregluna og annar var handtekinn í dag vegna ráns á tæplega 250 þúsund evrum, eða ríflega 43 milljónum kr., á pókermóti á hóteli í Þýskalandi. Ránið, sem framið var um hábjartan dag þykir minna um margt á bandaríska hasarmynd.
Rúmlega tvítugur Þjóðverji, í fylgd lögfræðings síns, gaf sig á mánudag fram við saksóknara í Berlín og viðurkenndi að hafa tekið þátt í ráninu um helgina. Eftir ítarlegar yfirheyrslur gaf hann upp nöfn vitorðsmanna sinna, auk þess að bjóðast til að endurgreiða sinn hluta hins 242.000 evra ránsfengs - þó féð væri á þeim tímapunkti í vörslu þriðja aðila.
Vitorðsmennirnir reyndust vera 19 ára Þjóðverji, tvítugur Tyrki og tvítugur maður af óþekktu þjóðerni, að því er AFP-fréttastofan hefur eftir Sjors Kamstra, talsmanni skrifstofu saksóknara.
Í dag var einn vitorðsmannanna síðan handtekin og er málið nú talið upplýst.
Ránið þykir um margt minna á bandaríska hasarmynd, enda réðust mennirnir grímuklæddir og vopnaðir um hábjartan dag inn á Hyatt hótelið við Potsdamer Platz í Berlín. Myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum af atburðinum sýna hvernig þeir gripu poka af fé og tókust á við öryggisverði áður en þeir brunuðu á burt í svörtum Benz.
Pókermótið var hluti af Evrópsku pókermótaröðinni og tóku um 950 manns þátt, m.a. tennisstjarnan Boris Becker. En heildarverðlaunaféð nam 4.7 milljónum evra.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 20. ágúst 2009, Erlent Handteknir fyrir skartgriparán
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Erlent Bjóða 1 milljón punda í verðlaun
- Þriðjudagur, 22. september 2009, Erlent Prestur tekinn fyrir bankarán
- Laugardagur, 30. maí 2009, Erlent Stal skartgripum fyrir 6 milljónir evra
- Mánudagur, 22. júní 2009, Erlent Gimsteinaþjófar gómaðir í París
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































