Ætlaði að ráðast á Jyllands-Posten
mbl.is/GSH
Bandaríkjamaður af pakistönskum uppruna játaði fyrir rétti í Chicago í Bandaríkjunum í dag, að hafa stundað hryðjuverkastarfsemi. Hann viðurkenndi að hafa notað fyrirtæki vinar síns sem skálkaskjól til að kanna aðstæður í Mumbai fyrir hryðjuverkaárás sem þar var gerð árið 2008 og að undirbúa árás á danska blaðið Jyllands-Posten.
Maðurinn, sem heitir David Coleman Headley og er 49 ára, sagðist hafa starfað á vegum tveggja pakistanskra hryðjuverkasamtaka. Hann er sonur fyrrum pakistansks sendimanns og bandarískrar konu og er sagður hafa vingast við Bollywood-stjörnur á Indlandi á meðan hann var að undirbúa hryðjuverk.
Headley dvaldi í 2 ár í Mumbai og fór meðal annars í bátsferðir um höfn borgarinnar til að finna heppilega lendingarstaði fyrir árásarmennina, sem myrtu 166 manns í árásinni í nóvember árið 2008.
Þá var Headley þegar byrjaður að undirbúa sprengjuárásir á byggingar danska blaðsins Jyllands-Posten til að hefna fyrir að blaðið birti haustið 2005 skopmyndir af Múhameð spámanni. Það voru pakistönsku hryðjuverkasamtökin Harakat-ul-Jihad-Islam, sem ætluðu að standa fyrir þeirri árás.
Stjórnvöld í Indlandi og Bandaríkjunum sögðu ljóst, að samtökin Lashkar-e-Taiba í Pakistan hefðu skipulagt árásina í Mumbai. Headley sagðist hafa byrjað að vinna fyrir þessi samtök árið 2002. Hann kannaði einnig möguleika á árás á indverska kvikmyndaverið, sem nefnt er Bollywood, og á helgasta Hindúamusteri landsins.
Headley var handtekinn á O'Hare flugvellinum í Chicago í október þegar hann ætlaði að afhenda 13 eftirlitsmyndbönd, sem hann komst yfir þegar hann þóttist hafa áhuga á að kaupa auglýsingar í Jyllands-Posten.
Erlent »
- Lét sér fátt um finnast við strandið
- Hóta Vesturlöndum og Ísrael
-
Íranar fagna byltingarafmæli
- Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni
- Gingrich og Santorum herja á Obama
- Barist um bandarísku sálina
- Ásaka Breta um hervæðingu
- Dóná fraus í nótt
- Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi
- Saadi Gaddafi boðar byltingu
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
Föstudagur, 10.2.2012
- Reyna að losna við Grikki
- Árás á vefsvæði CIA
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
- Mynd ársins tekin í Jemen
- Banna eyrnastýfingu hunda
- Bannað að biðja á bæjarráðsfundum
- Vilja handtaka fulltrúa AGS
- Fyrirtækin slást um verkfræðingana
- Risaháfur á land
- Ævisaga Pútíns skyldulesning
- Átök á götum Aþenu
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. desember 2010, Erlent Tókst að hindra skæruliðaárás
- Fimmtudagur, 29. október 2009, Erlent Aðrir áttu að gera árásina
- Þriðjudagur, 23. nóvember 2010, Erlent Taldir vilja ráðast á Danmörku
- Mánudagur, 7. desember 2009, Erlent Ákærður fyrir aðild á árásum í Mumbai
- Miðvikudagur, 28. október 2009, Erlent Segist ekki hafa vitað um hryðjuverkaáform
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið




































