Atkvæði greidd um heilbrigðisfrumvarp á sunnudag
Bandaríska fulltrúadeildin mun greiða atkvæði um heilbrigðismálafrumvarp á sunnudag. Reiknað er með, að Barack Obama, Bandaríkjaforseti, muni fresta fyrirhugaðri ferð sinni til Asíu enn um nokkra daga eða fram í næstu viku vegna málsins. Hann hefur lagt gríðarlega áherslu á að lögum um heilbrigðisþjónustu verði breytt.
AFP fréttastofan hefur eftir Chris Van Hollen, þingmanni demókrata, að þeir muni væntanlega birta frumvarpstextann allan í dag þannig að hann verði á netinu þremur sólarhringum fyrir atkvæðagreiðsluna eins og þeir hafa áður heitið.
AP fréttastofan hefur eftir Steny Hoyer, öðrum demókrata, að verði frumvarpið að lögum muni það draga úr fjárlagahalla um 100 milljarða dala á fyrstu tíu árunum og yfir 1 billjón dala á áratugnum þar á eftir. Samt sem áður er gert ráð fyrir að lögin tryggi að nánast allir Bandaríkjamenn fái aðgang að heilsugæslu og banni tryggingafélögum að neita því að gefa sjúkum kost á að kaupa heilbrigðistryggingu.
Afgreiðsla málsins á Bandaríkjaþingi er afar flókin. Fulltrúadeildin samþykkti heilbrigðisfrumvarp á síðasta ári og öldungadeild þingsins samþykkti talsvert breytta útgáfu sem margir demókratar í fulltrúadeildinni eru ekki sáttir við. Nú er gert ráð fyrir, að fulltrúadeildin samþykki útgáfu öldungadeildarinnar og síðan muni báðar þingdeildir samþykkja viðbótarfrumvarp sem sníði helstu vankanta af heilbrigðisfrumvarpinu.
Hoyer segir, að þingmenn í fulltrúadeildinni séu nú að ganga úr skugga um, að starfsbræður þeirra í öldungadeildinni muni samþykkja viðbótarfrumvarpið.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 14. febrúar 2009, Erlent Efnahagsaðgerðir afgreiddar
- Laugardagur, 19. desember 2009, Erlent Styður frumvarp Obama
- Laugardagur, 20. mars 2010, Erlent „Við ætlum að klára þetta“
- Sunnudagur, 8. nóvember 2009, Erlent Sigur fyrir Obama
- Þriðjudagur, 24. febrúar 2009, Erlent Beðið eftir ræðu Obamas
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































