Flóttamaður dó þegar flytja átti hann úr landi
Ólöglegir flóttamenn í haldi. Reuters
Stjórnvöld í Sviss hafa ákveðið að senda ekki fleiri flóttamenn úr landi með flugvélum eftir að flóttamaður frá Nígeríu lést á flugvellinum í Zurich þegar að flytja átti hann úr landi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Sviss hafði maðurinn, sem var 29 ára gamall, verið fluttur í handjárnum á flugvöllinn en fyrirhugað var að fljúga með hann úr landi ásamt 15 öðrum Nígeríumönnum. Þegar maðurinn veiktist voru handjárnin losuð af honum og reynt að endurlífga hann, en án árangurs.
Lögreglan segir að maðurinn hafi verið handjárnaður vegna þess að hann sýndi mótþróa. Tveir landar mannsins hafa sakað lögregluna um ómannúðlega meðferð á manninum. Annar þeirra sagði að komið hefði verið fram við Nígeríumennina eins og dýr.
Maðurinn sem lést var fíkniefnasali og hafði verið í hungurverkfalli í nokkra daga. Þetta er þriðja dauðsfallið í Sviss sem orðið hefur frá árinu 1999 þegar verið er að flytja flóttamenn nauðuga úr landi.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 22. júní 2009, Erlent Svíar vísa sendiráðsmanni úr landi
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Fimmtudagur, 9. júlí 2009, Erlent Framselja meintan þjóðarmorðingja
- Föstudagur, 14. ágúst 2009, Erlent Danir slæm fyrirmynd
- Föstudagur, 19. nóvember 2010, Erlent Sauma saman á sér varirnar
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































