Ísbjarnarafurðir ekki bannaðar
Tillögu Bandaríkjanna um bann við viðskiptum með afurðir hvítabjarna, eða ísbjarna, var hafnað á fundi CITES í Doha í Quatar í gær. Hefði bannið náð fram að ganga hefði það stöðvað viðskipti með feldi hvítabjarna, tennur og klær, að sögn Grænlenska útvarpsins KNR.
CITES óttaðist að slíkt bann myndi bitna á frumbyggjum auk þess sem fulltrúar á fundinum voru ekki vissir um að hvítabirnir væru í jafn mikilli útrýmingarhættu og sumir vísindamenn og dýraverndunarsinnar halda fram.
Norðmenn, Kanadamenn og Grænlendingar hafa einkum beitt sér gegn tillögu Bandaríkjamanna. Kanadamenn lýstu ánægju sinni með niðurstöðu fundarins. Því var heitið að stunda áfram sjálfbærar veiðar á hvítabjörnum.
CITES er samningur um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu. Hann var gerður í Washington 3. mars 1973 ásamt síðari breytingum og viðaukum.
Markmið samningsins er að vernda tegundir dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu með því að stjórna alþjóðlegum viðskiptum með þær. Samningurinn gildir um verslun með tegundir eða afurðir um 5.000 dýrategunda og 25.000 plöntutegunda, að því er segir á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Umhverfisráðuneytið fer með yfirstjórn CITES samningsins á Íslandi en Umhverfis stofnun veitir leyfi, annast eftirlit o.þ.h. Náttúrufræðistofnun Íslands veitir vísindalega ráðgjöf varðandi greiningu eintaka, verndarstöðu þeirra o.fl.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Erlent Ósáttir við fyrirhugað túnfiskveiðibann
- Fimmtudagur, 18. mars 2010, Erlent Túnfiskviðskipti ekki bönnuð
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Erlent Vilja veiðibann á túnfisk
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































