Páfi biðst afsökunar
Benedikt páfi 16. bað í dag fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar presta á Írlandi afsökunar. Hann sagði í bréfi til kaþólsku kirkjunnar á Írlandi að það hefði verið mistök af kirkjunnar hálfu að hylma yfir með þeim sem brotin frömdu.
Páfi sagðist taka undir með fórnarlömbum kynferðislegrar misnotkunar og fjölskyldum þeirra sem lýst hafa því yfir að þau líti svo á að kirkjan hafi svikið þau. Páfi sagði að biskupar kirkjunnar hefðu gert „alvarleg mistök“ þegar þeir fengu upplýsingar um misnotkunina.
Bréfið felur í sér opinbera yfirlýsingu páfagarðs. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt bréf er sent en ásakanir um brot kirkjunnar á Írlandi ná áratugi aftur í tímann. Bréfið kemur í kjölfar upplýsinga sem hafa vegið að rótum kaþólsku kirkjunnar á Írlandi.
Ásakanir umkynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar hafa verið lagðar fram í fleiri löndum, m.a. í Þýskalandi, heimalandi páfa.
Sean Brady, yfirmaður kaþósku kirkjunnar á Írlandi, las bréf páfa upp í kirkju í dag. Hann hefur sjálfur verið gagnrýndur jarðlega fyrir að hafa tekið þátt í að hylma yfir með þeim sem brutu af sér. Sumir þeirra sem gagnrýnt hafa viðbrögð kirkjunnar höfðu vonast eftir að honum yrði gert að segja af sér.
Maeve Lewis, talsmaður fórnarlambanna, sagði að bréf páfa gengi of skammt og kæmi of seint.
„Þið hafið mátt þola svívirðilega og ég biðst sannarlega afsökunar,“ sagði páfi og bætti við „traust ykkar hefur verið svikið og virðing ykkar hefur verið smáð. Ég lýsi yfir skömm og jafnframt iðrun.“
Erlent »
- Tóku forskot á sæluna í Bonn
- Fjöldamótmæli vegna ACTA
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
- Barist um skatta og eyðslu
- Fimm blaðamenn handteknir
- Lét sér fátt um finnast við strandið
- Hóta Vesturlöndum og Ísrael
-
Íranar fagna byltingarafmæli
- Hvatt til fjöldamótmæla á Spáni
- Gingrich og Santorum herja á Obama
- Barist um bandarísku sálina
- Ásaka Breta um hervæðingu
- Dóná fraus í nótt
- Segja al-Qaeda bera ábyrgð í Sýrlandi
- Saadi Gaddafi boðar byltingu
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
Föstudagur, 10.2.2012
- Refsilaus mynd með nasistafána
- Þrír látnir og tveir særðir eftir gíslatöku
- Vill herskyldu fyrir konur
- Verkföll fyrir kjötkveðjuhátíð
- Ungir Rússar taka eigið líf
- Fraus í hel
- Lögsæki ekki dómara
- Segir minni tiltrú á SÞ
- Seldi CIA gögn um rússneskar eldflaugar
- Fræg bygging eldi að bráð
- Spilling verður N-Kóreu að falli
-
Enn gýs í Eldhringnum
- Leggja niður störf og mótmæla
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
- Heimilislausir í skjól í Bakú
- Garzón gefst ekki upp
-
260 dauðir höfrungar á land
- Leitað að lausn á Maldíveyjum
- Hældi Breivik á Facebook
- Dönsk ungmenni vilja ekki í sturtu
-
Áframhaldandi ógnaröld í Homs
- Grikkjum sett hörð skilyrði
- Kvenhermenn nær vígvellinum
-
FBI birtir skjöl um Steve Jobs
-
Obama hrósaði Monti
Fimmtudagur, 9.2.2012
Erlend málefni
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Mótmæli í Grikklandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 18. september 2010, Erlent Páfi biðst afsökunar
- Þriðjudagur, 16. febrúar 2010, Erlent Gjörðir mikilvægari en orð
- Laugardagur, 18. september 2010, Erlent Páfi bað með fórnarlömbum
- Föstudagur, 12. mars 2010, Erlent Páfi vissi af kynferðisbrotum prests
- Sunnudagur, 27. júní 2010, Erlent Páfi gagnrýnir belgísku lögregluna
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































