„Við ætlum að klára þetta“

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

„Við ætlum að klára þetta,“ sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, þegar hann hélt ræðu um heilbrigðisfrumvarp sitt, en á morgun verða greidd atkvæði um frumvarpið í fulltrúadeildinni.

Steny Hoye, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni segist sannfærður um að meirihluti sé fyrir frumvarpinu í deildinni, en 216 þurfa að segja já til að frumvarpið verði samþykkt.

Leiðtogar Demókrata í fulltrúadeildinni ákváðu að láta greiða atkvæði um þá gerð frumvarpsins sem var samþykkt í öldungadeildinni frekar en að fara hefðbundna leið sem hefði leitt til þess að frumvarpið yrði að lögum án atkvæðagreiðslu.

Frumvarpið hefur áður verið samþykkt bæði í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni, en öldungadeildin breytti frumvarpinu og því þarf það að fara aftur til fulltrúadeildarinnar.

Obama flutti ræðu í dag þar sem hann skoraði á þingið að samþykkja lögin. Hann lagði áherslu á að frumvarpið fæli í sér að áfram yrði byggt á núverandi tryggingakerfi og því væri ekki um það að ræða að verið væri að ríkisvæða heilbrigðiskerfið eins og andstæðingar frumvarpsins hafa haldið fram. Hann sagði að frumvarpið fæli í sér málamiðlun milli þeirra sem teldu ekki nægilega langt gengið og þeirra sem teldu of langt gengið.

Obama hefur lagt gríðarlega áherslu á þetta mál. Einn af andstæðingum hans sagði að ef frumvarpið yrði fellt gæti Obama farið heima til Camp David, sem er sumardvalarstaður forsetans, og verið þar í fríi út kjörtímabilið. Forseti sem tapaði svona mikilvægri atkvæðagreiðslu hefði ekkert meira fram að færa. Obama sagði í dag að hann gerði sér grein fyrir að þetta yrði tvísýn atkvæðagreiðsla.

Frumvarpið felur í sér að 32 milljónir Bandaríkjamanna sem eru ekki með neina sjúkratryggingu í dag fá aðgang að heilbrigðisþjónustu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá Sýrlandi

Árásir í sólarupprás í Homs

08:44 Stjórnarherinn í Sýrlandi hélt áfram árásum sínum á borgina Homs í morgun. Sýrlensk stjórnvöld hafa hafnað tillögu Arababandalagsins um að senda friðarsveitir til landsins. Meira »
Frá Kúveit-borg.

Hættur vegna eyðslu ríkisins

06:41 Seðlabankastjóri Kúveit, Salem Abdulaziz Al-Sabah, hefur sagt af sér í mótmælaskyni gegn vaxandi eyðslu ríkisins en hann hefur gegnt embættinu undanfarin aldarfjórðung að sögn fréttaveitunnar AFP. Meira »

Átök í Aþenu myndskeið

Niðurskurður samþykktur á sama tíma og Aþena brennur
08:37 Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælum í Aþenu í nótt eftir að gríska þingið samþykkti niðurskurðaráætlanir stjórnvalda. Víða var kveikt í byggingum í Aþenu og brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu. Meira »

Grikkir samþykkja niðurskurð

Lucas Papademos forsætisráðherra Grikklands á þinginu í dag.
Í gær, 22:53 Gríska þingið hefur samþykkt umdeildar niðurskurðartillögur. Mikil mótmæli hafa verið í Aþenu, höfuðborg landsins, í dag.   Meira »

Biður Bashar al-Assad að afsala sér völdum

Fjöldamótmæli hafa verið í Sýrlandi gegn Bashar al-Assad, forseta landsins. Þessi mynd var tekin í ...
Í gær, 22:39 Moncef Marzouki, forseti Túnis, vonast til þess að hægt verði að finna friðsamlega lausn á mótmælaöldunni í Sýrlandi en fjölmargir hafa látið lífið í átökum mótmælenda og stjórnarhers. Meira »

Skortur á menntuðum kennurum í ESB

Við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
07:07 Ríki Evrópusambandsins eru farin að finna fyrir skorti á menntuðum kennurum í vaxandi mæli samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com. Fram kemur að staðan í þeim efnum fari stöðugt versnandi og að framkvæmdastjórn sambandsins hafi séð ástæðu til þess að vekja sérstaka athygli á þessum vanda. Meira »

Farþegi réðst á flugmanninn

Í gær, 22:46 Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar. Meira »

Skemmdarverk verða ekki liðin myndskeið

Mótmælin í grikklandi
Í gær, 22:13 Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, hvetur þjóð sína til að sýna stillingu en margir mótmælendur hafa safnast saman á götum úti á meðan gríska þingið ræðir niðurskurðartillögur. Meira »

Eldtungur teygja sig til himins

Reynt að slökkva eld í kvikmyndahúsi í miðborg Aþenu.
Í gær, 21:19 Eldtungur teygja sig til himins í Aþenu, höfuðborg Grikklands, en á morgun verða greidd atkvæði í gríska þinginu um umdeildar niðurskurðartillögur. Tillögurnar eiga að koma í veg fyrir að landið verði gjaldþrota. Meira »

Murdoch á leið til Bretlands

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?
Í gær, 17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

Stúlku bjargað
Í gær, 19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
Í gær, 17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
Í gær, 17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
Í gær, 16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
Í gær, 16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
Í gær, 16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

Í gær, 16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

Í gær, 14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vortilboð á öllum garðverkum trjáfellingar frá 5 þúsund krónum
Vortilboð: Trjáfellingar frá 5 þús., ódýrar trjáklippingar, fagleg þjónusta og m...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
Toyota LC 120 VX Diesel 2004
Diesel - Ek 99 þús - 33" Breyting Arctick Trucks - 8 manna Leður - Glertopplúga ...
Húsaleigusamningar
Löggiltur skjalapappír fyrir samninga. 100kr. stk. Dyraskilti 3.600 kr. BOÐI ...
 
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Bæjarhraun...
12755 klapparstígur
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Vélvirki starf í noregi
Iðnaðarmenn
Vélvirki Starf í Nore...
Patreksfjörður rafmagn
Tilboð - útboð
Útboð Vesturbyggð P...