Ögurstund hjá Obama

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Allar líkur eru á að fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykki í kvöld frumvarp Obama forseta um breytingar á heilbrigðismálum.

Leiðtogar demókrata segja að meirihluti þingmanna styðji frumvarpið.

Í Bandaríkjunum eru tvö sjúkratryggingakerfi sem njóta fjárhagsstuðnings frá ríkinu. Þau kallast Medicare (aðallega sniðið að þörfum eldra fólks) og Medicaid (aðallega fyrir lágtekjufólk).

Meginreglan er sú að einstaklingar verða sjálfir að velja sér sjúkratryggingu. Flestir fá slíka tryggingu fyrir milligöngu atvinnuveitenda, en aðrir kaupa sér tryggingu frá einkafyrirtækjum.

Þessar tryggingar byggjast á því að fólk greiði reglulegt iðgjald, en stundum þarf fólk að greiða hluta af kostnaði við læknisaðgerð áður en tryggingafélagið borgar sjúkrakostnað.

Þegar spurt er hvað sé að bandaríska heilbrigðiskerfinu ber fyrst að nefna að Bandaríkjamenn vörðu 16,2% af landsframleiðslu til heilbrigðismála árið 2007 sem er nærri tvisvar sinnum meira en önnur lönd í OECD vörðu í heilbrigðismál.

Þar til viðbótar er áætlað að árið 2008 hafi 46,3 milljónir Bandaríkjamanna ekki verið með neina sjúkratryggingu. Bandaríkjamenn eru um 300 milljónir. Hafa ber í huga að af þessum 46 milljónum eru 9,2 milljónir ólöglegir innflytjendur og um 18 milljónir með árstekjur yfir 50 þúsund dollara á ári (6,3 milljónir króna), sem eflaust telja sig ekki þurfa á tryggingum að halda. En einnig má nefna að milljónir Bandaríkjamanna eru með sjúkratryggingu sem er of lág og dekkar ekki nema takamarkaðan kostnað.

Þegar einhver sem ekki er með neina sjúkratryggingu eða er með takmarkaða tryggingu verður veikur verður hann að greiða lækniskostnað úr eigin vasa. Talið er að helming af gjaldþrotum í Bandaríkjunum megi rekja til þess að fólk hefur ekki ráðið við kostnað sem kom til vegna veikinda.

Frumvarp stjórnar Obama felur í sér strangari reglur um sjúkratryggingar, hver og einn mun eiga rétt á sjúkratryggingu, sett verður upp trygging fyrir þá sem eru ekki með sjúkratryggingu frá vinnuveitenda og sjúkratryggingin verður niðurgreidd fyrir þá efnaminni. Þessi niðurgreiðsla verður þó mismunandi milli svæða. Ætlunin er að fjármagna stóran hluta þessara útgjalda með því að skera niður kostnað við Medicare.

Það sem andstæðingar frumvarpsins hafa helst gagnrýnt er að það feli í sér ríkisvæðingu í heilbrigðismálum og eins er ágreiningur um leiðir til að fjármagna viðbótarkostnað sem frumvarpið hefur í för með sér. 

Demókratar eru með meirihluta bæði í fulltrúadeildinni og öldungadeildinni. Engu að síður var talið tvísýnt að frumvarpið yrði samþykkt. Ástæðan er sú að innan flokksins eru þingmenn sem eru óánægðir með frumvarpið, annað hvort vegna þess að þeim finnst frumvarpið ekki ganga nógu langt eða vegna þess að þeim finnst það ganga of langt. Kosningar verða í nóvember og hafa sumir þingmenn áhyggjur af því að frumvarpið geti spillt fyrir endurkjöri þeirra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?

Murdoch á leið til Bretlands

17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »
Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hefur borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.
Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýskalandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
í gær Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

í gær Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.
í gær Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

í gær Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
í gær Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Til leigu 2-3ja herb.íbúðir fyrir fjölskyldur og erlenda ferðamenn. ALLT til ALL...
BILASKOLI.IS
Bilaskoli.is Bókleg námskeið - ökukennsla - akstursmat - kennsla fatlaðra Gylfi ...
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Mottu Mars kemur Ez Detect er.einfalt, öruggt, og ódýrt heimapróf fyrir ósý...
Mávastellskaffikanna
Verð 15. þúsund. Áhugasamir sendi mér skilaboð á netfangið bmagnusdottir@hotmail...
 
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Bæjarhraun...
1 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
12755 klapparstígur
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...