Flug British Airways að komast í eðlilegt horf

Starfsfólk British Airways sneri aftur til vinnu í dag stækka

Starfsfólk British Airways sneri aftur til vinnu í dag Reuters

Flug á vegum British Airways er að færast í eðlilegt horf á ný eftir þriggja daga verkfall áhafa flugfélagsins en verkfallinu lauk í gærkvöldi.

Er búið að setja fjölda flugferða sem ekki var hægt að fljúga á meðan verkfallinu stóð á áætlun í dag og næstu daga, samkvæmt frétt á vef BBC.

Flugliðar BA hafa boðað annað verkfall þann 27. mars en það á að standa í fjóra sólarhringa. Flugmenn og flugfreyjur félagsins krefjast hærri launa og bættra skilyrða í vinnu en samningafundir hafa ekki skilað árangri. Ekki hefur verið boðað til nýrra viðræðna en verkalýðsfélög flugliðanna hafa skorað á Willie Walsh, forstjóra BA, að setjast að samningaborðinu á ný.

British Airways hefur sent frá sér tilkynningu um að ekki sé gert ráð fyrir því að verkfallið hafi mikil áhrif á afkomu félagsins á yfirstandandi rekstrarári.

Tap BA áfyrstu níu mánuðum rekstrarársins, apríl-desember 2009, nam 342 milljónum punda fyrir skatta. Er lögð mikil áhersla á það hjá BA að skera verulega niður rekstrarkostnað þar sem félagið fari að öðrum kosti í þrot.

Gordon Brown, forsætisráherra Bretlands, hefur rætt við deiluaðila og hvatt þá til þess að ná samkomulagi en ekki hefur verið rætt um að setja lög á verkfallið líkt og gert var með flugvirkja hjá Icelandair í gær.

Beðið eftir flugi á Heathrow

Beðið eftir flugi á Heathrow Reuters

Frá Heathrow flugvelli í Lundúnum í gær

Frá Heathrow flugvelli í Lundúnum í gær Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »
Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Schwinn 16" stúlknareiðhjól.
Mjög vel farið. Fjólublátt með körfu. Hjálpardekk fylgja. Verð 12.000 kr. Haf...
Hobby 560 kmfe kojuhús til sölu árg 2007
Til Sölu Hobby 560 kmfe Exclusive,, útvarp sjónvarp dvd ,sólarsella, boiler ,álf...
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
Gisting Akureyri - gista.is
Notalegar orlofsíbúður miðsvæðis á Akureyri. Uppábúin rúm, handklæði og internet...
 
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...