Barnaburðarpokar innkallaðir

Infantino Sling Rider barnaburðartaska hefur verið innkölluð og einnig Infantino Wendy Bellissimo. stækka

Infantino Sling Rider barnaburðartaska hefur verið innkölluð og einnig Infantino Wendy Bellissimo.

Barnaburðartöskur af gerðunum „Sling Rider“ og „Wendy Bellissimo“ frá ítalska fyrirtækinu Infantino hafa verið innkallaðar í Bandaríkjunum. Talið er að rekja megi dauðsföll þriggja ungbarna til notkunar axlataskanna. Ekki er vitað til að þessar gerðir hafi verið seldar hér á landi.

Búið er að innkalla meira en eina milljón taska af þessum gerðum í Bandaríkjunum og um 15.000 í Kanada. Yfirvöld neytendamála í Bandaríkjunum hvetja foreldra barna yngri en 4 mánaða til að hætta nú þegar að nota töskur af þessum gerðum, að sögn The Daily Telegraph. 

Talin er hætta á að ungbörnin geti kafnað í töskunum sem eru úr mjúku taui. Ól töskunnar er brugðið yfir aðra öxlina og liggur barnið ofan í pokanum eða töskunni.

Heildverslunin Engey hefur flutt inn burðarboka frá Infantino til sölu hér á landi, en ekki af þeim gerðum sem nú hafa verið innkallaðar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Fer The Sun sömu leið og News ff the World?

Murdoch á leið til Bretlands

17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »
Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hafa borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
Í gær, 20:06 Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.
Í gær, 19:44 Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýsklandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
í gær Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

í gær Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.
í gær Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

í gær Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafinn og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Lét sér fátt um finnast við strandið

Skemmtiferðaskipið Costa Concordia marar nú í hálfu kafi við eyjuna Giglio.
í gær Myndband, sem tekið var á ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia, skömmu eftir að það steytti á skeri 13. janúar síðastliðinn, sýnir að skipstjóri skipsins lét sér fátt um finnast við strandið. Lögregla hyggst nota upptökuna við rannsókn sína. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CRF-150cc 2007..SKOÐA ÖLL SKIPTI..
Til sölu Honda CRF-150cc fjórgengiskrossari, árgerð 2007. Hjólið er í toppstandi...
Notuð húsgögn á www.Haninn.is
Oft er hægt að gera góð kaup, ef fylgst er með auglýsingum okkar reglulega á www...
SPÁNN ÍBÚÐ Í EXSAMPLE Í BARCELONA
Spánn Íbúð í Exsample í Barcelona. Vikuleiga í sumar. starplus.is - starplus.inf...
VW og Skoda varahlutir 5341045
Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaupum bíla til ...
 
Sölumaður
Sölu/markaðsstörf
Sölu- og viðgerðar- menn óskast til...
Yfirkokkur
Hótel- og veitingarekstur
Yfirkokkur Fjalakötturinn Restaura...
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Viðtöl vegna úttektar á or 01420
Tilkynningar
TILKYNNING Úttektarnefnd Orkuveitu Re...