Sagt að herða mittisólina

Mótmæli vegna efnahagsástandsins í Grikklandi eru daglegt brauð í Aþenu. stækka

Mótmæli vegna efnahagsástandsins í Grikklandi eru daglegt brauð í Aþenu. reuters

Morgunblaðið eftir Kristján Jónsson

Skuldavandi Grikkja ætlar að reynast afdrifaríkur, engin góð lausn er í sjónmáli og enn lækkaði gengi evrunnar í gær vegna ótta fjárfesta við þróun mála.

Leiðtogar evruríkjanna koma saman í dag og freista þess að finna lausn. En ekkert bendir til annars en að grískir skattgreiðendur verði að sætta sig við þær harkalegu aðgerðir sem svindl og óráðsía forvera vinstrimannsins Georgs Papandreou forsætisráðherra gerir óhjákvæmilegar.

Horfurnar eru ekki góðar og félagar Grikkja í Evrópusambandinu saka þá um ábyrgðarleysi og frekju þegar þeir vilja fá fjárhagsaðstoð. Skilaboðin eru að þeir eigi einfaldlega að herða mittisólina.

Efnahags- og samvinnustofnunin, OECD, sendi frá sér yfirlýsingu í gær og sagði Grikki verða að bregðast skjótt við auknu atvinnuleysi unga fólksins, þ. e. fólks á aldrinum 15-29 ára. Atvinnuleysi ungra í landinu hefði þegar fyrir kreppuna verið hærra en í flestum aðildarríkjum OECD. En nú er búist við að hlutfallið fari í 28% fyrir árslok. Stofnunin vill að fólki verði kennt að finna sér vinnu og vill að sett verði þak á greiðslur til þeirra sem hafa verið mjög lengi án vinnu.

„Allt verður að gera til að tryggja að ungir Grikkir hafi áfram tengsl við vinnumarkaðinn til þess að koma í veg fyrir að heil kynslóð verði fyrir varanlegu tjóni,“ sagði Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD.

Útlendingahatur vex

Stéttarfélög segja að örvænting vegna atvinnuleysis hafi að hluta til verið skýringin á þeim ofbeldisfullu mótmælum sem skóku nokkrar grískar borgir í desember 2008 eftir að lögreglumaður skaut ungling.

Fleira þjakar grískt samfélag sem var lengst af mjög einsleitt í þjóðernislegu tilliti. En það er liðin tíð og fjöldi hælisleitenda kemur til landsins ár hvert frá Miðausturlöndum og Afríku í von um betra líf í ESB-ríkjum. Útlendingahatur hefur fengið byr í seglin á seinni árum, að sögn fréttamanns Los Angeles Times. Sums staðar má sjá slagorð eins og „Burt með útlendinga! sem máluð hafa verið fyrirtæki þar sem erlent verkafólk starfar. Samtökin Gullin dögun og fleiri af sama toga munu standa fyrir þeim aðgerðum.

Tzanepos Antypas, leiðtogi mannréttindahreyfingarinnar Praksis, segir öryggisleysi vegna kreppunnar vaxa hratt og margir leiti sökudólga. „Og hverjum er auðvelt að kenna um þetta allt? Útlendingunum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »
Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 11000 mílur (176þús km) Slagrými ...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
 
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Hjúkrunarfræðingur/ snyrtifræðingur
Hárgreiðsla/Snyrting
Hjúkrunarfræðingur eða snyrtifræðingur ...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...