Netanyahu milli steins og sleggju
Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is
Fréttaskýrendurnir segja að ef Netanyahu verður við kröfu Bandaríkjastjórnar sé líklegt að samsteypustjórn hans falli vegna harðlínustefnu nokkurra samstarfsmanna hans í stjórninni.
Dagblaðið Maariv sagði í forystugrein að Netanyahu þyrfti nú að velja á milli áframhaldandi samstarfs við hægrisinnaða harðlínumenn og „og allra annarra í heiminum“. „Hann getur ekki lengur haft hvort tveggja.“
Félli þegar í stað
Netanyahu hélt til Ísraels í gær eftir viðræðurnar við Obama sem er sagður hafa lagt hart að forsætisráðherranum að stöðva byggingarframkvæmdir í byggðum gyðinga í Austur-Jerúsalem, flytja hermenn frá svæðum á Vesturbakkanum og leysa hundruð palestínskra fanga úr haldi til að greiða fyrir friðarviðræðum við Palestínumenn.Nokkrir ráðherrar í stjórn Netanyahus sögðu eftir fund Netanyahus með Obama að ekki kæmi til greina að verða við kröfu Bandaríkjastjórnar um að stöðva framkvæmdirnar í Austur-Jerúsalem. „Ef stjórnin gefur eftir í þessu máli fellur hún þegar í stað,“ sagði Silvan Shalom, aðstoðarforsætisráðherra og flokksbróðir Netanyahus.
Stjórnmálaskýrandinn Yossi Alpher sagði að Netanyahu gæti sjálfum sér um kennt því hann hefði kosið að mynda samsteypustjórn sem gæti ekki hafið samningaviðræður við Palestínumenn.
Eytan Gilboa, sérfræðingur í tengslum Bandaríkjanna og Ísraels, sagði að Netanyahu gæti reynt að mynda ríkisstjórn með miðflokknum Kadima sem er undir forystu Tzipi Livni, fyrrverandi utanríkisráðherra. Það dygði þó ef til vill ekki vegna andstöðu margra flokksbræðra Netanyahus í Likud við kröfu Bandaríkjastjórnar.
Í hnotskurn
» Nokkrir fjölmiðlar í Ísrael lýstu árangurslausri ferð Netanyahus til Washington sem „auðmýkingu“ fyrir forsætisráðherrann.» Fjölmiðlarnir skírskotuðu meðal annars til þess að Obama lét ekki sjá sig með Netanyahu og gaf ekki út neina yfirlýsingu um fund þeirra.
» Ísraelska dagblaðið Haaretz sagði að Netanyahu hefði verið „smánaður og einangraður“ í ferðinni.
» „Komið var fram við hann eins og vandræðabarn, í stað þess að tekið væri á móti honum sem heiðursgesti,“ sagði blaðið.



































