Fréttaskýring: Óróleiki á stjórnarheimilinu í Berlín
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Westerwelle hefur verið gagnrýndur harkalega í þýskum fjölmiðlum upp á síðkastið fyrir að hugsa fyrst og fremst um að hygla vinum sínum, sem hann tekur með sér í embættisferðir, og þykir hann skorta þá reisn sem fylgja eigi utanríkisráðherra. Hann þykir einnig kærulaus í yfirlýsingum eins og sú staðhæfing hans að í þýska velferðarríkinu ríki „síðrómversk úrkynjun“ ber vitni. Vinsældir Westerwelles hafa hrapað samkvæmt skoðanakönnunum.
Greinir á um grundvallaratriði
Ágreiningurinn við Schäuble snýst um grundvallaratriði. Merkel hefur þráfaldlega lýst yfir því að ríkin á evrusvæðinu verði að sjá um sig sjálf. Þau eigi ekki að fá stuðning úr vösum skattborgara annarra ríkja. Schäuble er annarrar skoðunar. Hann vill allt til vinna til þess að verja evrusvæðið þótt það kosti aðstoð úr ríkissjóði.Þetta vill Merkel forðast og því hefur hún lýst yfir því að til greina komi að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hjálpi Grikkjum. Þetta er þvert á yfirlýsingar Schäubles, sem hafnar aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skilyrðislaust. Schäuble er þeirrar hyggju að það væri afleitt ef Evrópubúar gætu ekki sjálfir leyst vandamálin vegna myntsamstarfsins. Í þokkabót myndi sjóðurinn ekki skerast í leikinn án afskipta af efnahagsmálum viðkomandi ríkis. Slík afskipti gætu haft áhrif á fjármála- og peningastefnu annarra evruríkja og á endanum skert sjálfstæði evrópska seðlabankans.
Í ofanálag væru Bandaríkjamenn ráðandi afl í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og engin ástæða væri til þess að hleypa þeim inn í málefni evrusvæðisins.
Merkel deilir ekki þessum áherslum og telur að innan sjóðsins sé að finna þekkingu sem ástæðulaust sé að nýta ekki gerist þess þörf.
Þýskur efnahagur stendur sterkum fótum um þessar mundir. Nágrannarnir gagnrýna Þjóðverja fyrir að ýta undir ójöfnuð í viðskiptum. Hallinn á viðskiptum Þýskalands við önnur evruríki var 139,9 milljarðar evra í fyrra Þjóðverjum í hag. Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, hefur gengið hvað harðast fram í gagnrýni á Þjóðverja út af þessu og stjórnvöld víða í Evrópu samsinna henni.



































