Saklaus í fangelsi í 17 ár
Japanskur karlmaður sem var á bak við lás og slá í sautján ár var beðinn formlega afsökunar af hinu opinbera í dag en sannað þykir að hann gæti ekki verið sekur um glæp sem hann var dæmdur fyrir árið 1991. Maðurinn var látinn laus úr fangelsi í júní í fyrra en þá hafði hann afplánað refsingu sína.
Toshikazu Sugaya, 63 ára, fyrrum skólabílstjóri, var dæmdur fyrir mannrán, kynferðislegt ofbeldi og að hafa myrt fjögurra ára gamla stúlku árið 1991. Nú hafa lífsýni sýnt fram á að ekki er mögulegt að hann hafi framið glæpina sem hann var dæmdur fyrir. Morðinginn gengur enn laus.
Masanobu Sato, héraðsdómari, bað Sugaya formlega afsökunar í dag fyrir hönd japanskra yfirvalda. Að sögn Sato biður hann Sugaya innilegrar afsökunar á því að ekki var hlustað á orð hans á sínum tíma.
Sugaya var eins og áður sagði látinn laus í júní en þá fyrirskipuðu yfirvöld að réttað yrði yfir honum að nýju þar sem miklar efasemdir höfðu komið upp um þær aðferðir sem beitt var við rannsókn málsins á sínum tíma. Þeim réttarhöldum lauk í dag með sýknu. Sugaya tárfelldi við dómsuppkvaðninguna í dag og sagði að loksins hafi réttur dómur verið kveðinn upp í málinu.
Sugaya var fyrst handtekinn síðla árs 1991 fyrir að hafa rænt stúlkubarni í Ashikaga, norður af Tókýó árið á undan. Lík stúlkunnar fannst síðar í á skammt frá þeim stað sem henni var rænt. Hafði hún verið beitt kynferðislegu ofbeldi.
Sugaya játaði á sig glæpinn á sínum tíma en dró játninguna síðar til baka og sagði að játningin hafi verið þvinguð fram af lögreglu með harðræði. Hann var hins vegar dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á stúlkunni árið 1993. Hæstiréttur Japans staðfesti dóminn árið 2000.
Erlent »
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 24. september 2010, Erlent Gennady Yanayev látinn
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Erlent Sat saklaus í fangelsi í 25 ár
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Stjúpi Baby P fundinn sekur um nauðgun
- Föstudagur, 18. desember 2009, Erlent Sat saklaus í fangelsi í 35 ár
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Erlent Reyndist saklaus eftir 28 ár í fangelsi
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































