„Svörtu ekkjurnar“ snúnar aftur

Blóm á lestarteinum Park Kultury stöðvarinnar í Moskvu þar sem önnur konan sprengdi sig í ... stækka

Blóm á lestarteinum Park Kultury stöðvarinnar í Moskvu þar sem önnur konan sprengdi sig í loft upp í dag. DENIS SINYAKOV

Sprengjurnar sem ollu dauða 38 farþega í neðanjarðarlestarkerfi Moskvu eru ekki þær fyrstu sem rekja má til kvenkyns sjálfsmorðssprengjumanna, því fyrir 10 árum síðan voru borgarbúar lamaðir af ótta vegna tíðra sprengjuárása kvenna.

Þær voru kallaðar Svörtu ekkjurnar og voru ungar konur, flestar frá múslimasvæðum í Norður-Kákasus, sem höfðu margar misst karlkyns ættingja sína í átökum við öryggissveitir yfirvalda.

Eftir fjölda blóðugra árása sem ollu dauða margra í byrjun áratugarins hafa Svartar ekkju varla heyrst né sést síðustu 5 árin, þar til nú. Yfirvöld í Moskvu segja tvær konur með tengsl við Norður-Kákasus bera ábyrgð á sjálfsmorðssprengjunum í borginni í dag og virðist því vera sem Svörtu ekkjurnar séu snúnar aftur.

Það voru ungar konur hlaðnar sprengjuefnum sem drápu 185 manns í herbúðum Rússa árið 2002, og á rokktónleikum í Moskvu árið 2003 og einnig voru það konur sem gerðu tvöfalda sjálfsmorðsárás í flugvél árið 2004. Konur komu líka við sögu í umsátrinu sem stóð í þrjá daga í Dubrovka leikhúsinu í Moskvu, þar sem 19 af 41 árásarmanni voru ekkjur eða mæður sem misst höfðu börn sín.

„Við vitum lítið um líf þessara kvenna fyrir árásirnar og hvað veldur því að þær taka af skarið," hefur AFP eftir Alexander Cherkasvo, sérfræðingi í Norður-Kákasus svæðinu. „Mín tilfinning er sú að oftar en ekki sé það hefndarþorsti sem ýtir þeim út í opinn dauðann. Þær eru að hefna fyrir ástvini sína og fyrir sjálfar sig."

Yfirvöld í Moskvu leita nú tveggja vitorðskvenna sem taldar eru viðriðnar árásina í dag og sáust á öryggismyndavélum fylgja sjálfsmorðssprengjukonunum tveimur að lestarstöðinni þar sem þær sprengdu sig í loft upp.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »
Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Stórt hundabúr
Til sölu stórt hundabúr. Passar fyrir tvo stóra hunda í bíl, búrinu fylgir skilr...
Cavalier King Charles Spaniel til sölu Frábærir fjölskyldu hundar
Erum með yndislega Cavalier til sölu Afhendast heilsufarsskoðaðir örmerktir og æ...
Þæg hross
Er með nokkra þæga hesta til sölu sem rúlla töltið, einnig nokkur trippi uppl. s...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA - ERTU BÚIN AÐ KÍ...
 
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...