Hvetja Kínverja til að veita upplýsingar um dauðarefsingar
Andstæðingar dauðarefsinga fyrir utan San Quentin-fangelsið í Bandaríkjunum. AP
Amnesty International skorar á kínversk yfirvöld að greina opinberlega frá fjölda aftaka í landinu og hversu margir hafa verið dæmdir til dauða. Segja samtökin að 714 einstaklingar að minnsta kosti hafi verið teknir af lífi í 18 löndum á síðasta ári og að lágmarki 2001 einstaklingur var dæmdur til dauða í 56 löndum.
Í þessum tölum koma ekki fram þúsundir aftaka sem líklegt er að hafi átt sér stað í Kína á síðasta ári, þar sem upplýsingar um dauðarefsingar í Kína eru enn ríkisleyndarmál.
Yfirlitsskýrsla Amnesty International um dauðarefsingar 2009 er birt í dag en þar er gefið yfirlit yfir þau lönd sem enn beita dauðarefsingum. Í áskorun til kínverskra yfirvalda krefjast samtökin þess að leyndinni verði aflétt og yfirvöld tryggi gagnsæi. Amnesty International hefur ákveðið að birta ekki eigin lágmarkstölur um aftökur og dauðarefsingar í Kína á árinu 2009, þar sem tölurnar eru ekki taldar endurspegla raunverulegt umfang aftaka í landinu.
Rannsóknir Amnesty International sýna að 388 aftökur hafi farið fram í Íran í fyrr, að minnsta kosti 120 í Írak, að minnsta kosti 69 í Sádi-Arabíu og 52 aftökur í Bandaríkjunum. Þá segja samtökin að á síðasta ári hafi dauðarefsingum mikið verið beitt í Kína, Íran og Súdan til að senda pólitísk skilaboð og þagga niður í pólitískum andstæðingum.
Í Íran er vitað um að 112 hafi verið líflátnir á átta vikna tímabili milli forsetakosninganna 12. júní 2009 og embættistöku Mahmouds Ahmadinejads sem forseta landsins þann 5. ágúst 2009.
Fjöldi ríkja, sem hafa afnumið dauðarefsinguna algjörlega úr lögum, hefur aukist eftir að Búrúndí og Tógó afnumdu dauðarefsingu fyrir alla glæpi. 95 ríki heimila ekki dauðarefsingar.
Engar aftökur voru framkvæmdar í Evrópu á árinu 2009, í fyrsta sinn frá því að Amnesty International hóf skráningar. Hvíta-Rússland er eina landið í álfunni sem enn beitir dauðarefsingum. Bandaríkin voru eina landið í Ameríkuríkjum sem framkvæmdi aftökur 2009.
Erlent »
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Erlent Dauðarefsingar í Kína valda áhyggjum
- Þriðjudagur, 24. mars 2009, Erlent Dauðarefsingar á undanhaldi
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Erlent Þrengja lög um dauðarefsingar
- Föstudagur, 3. júlí 2009, Erlent Mótmæltu aftökum Hvít-Rússa
- Þriðjudagur, 11. ágúst 2009, Erlent Þrengja skilyrði dauðarefsinga
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































