Svíi sakaður um að leka upplýsingum til Rússa
Embættismaðurinn átti nokkra fundi með Rússum í New York, að því er Expressen greinir frá. mbl.is/Einar Falur
Sænska dagblaðið Expressen greinir frá því í dag að sænskur embættismaður hafi lekið viðkvæmum leyniupplýsingum um Evrópusambandið til rússneskra stjórnvalda. Þetta hefur blaðið eftir fyrrum starfsmanni rússnesku leyniþjónustunnar, sem hefur flúið land.
„Hann lét okkur í té mikið magn upplýsinga og skjala, sérstaklega varðandi samskipti fyrrverandi ríkja Sovétríkjanna við ESB og NATO,“ segir Sergei Tretyakov í viðtali við Expressen.
Tretyakov segir að sænski ríkiserindrekinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, hafi gengið til liðs við Rússa á fundi sem fram hafi farið í New York seint á tíunda áratugnum. Þar hafi hann átt nokkra fundi með rússnesku utanríkisleyniþjónustunni (SVR) árið 1999 og 2000.
Rússarnir gáfu njósnaranum dulnefnið Silverster, sem kom leynilegum upplýsingum á framfæri sem hann komst yfir í gegnum innra upplýsinganet sambandsins, sem kallast Coreu.
„Hann var mikils virði. Hann veitti okkur stöðugan og mikilvægan aðgang að nýjustu upplýsingum,“ segir Tretyakov.
Hann segir að Rússar hafi m.a. fengið upplýsingar varðandi átökin í Kosovo í fyrrum Júgóslavíu, sem hafi skipt Rússa miklu máli.
Þá lét hann Rússa fá upplýsingar sem komu fram í samtölum við aðra embættismenn.
Sænski ríkiserindrekinn, sem er enn sagður starfa hjá sænska utanríkisráðuneytinu, játar í samtali við Expressen að hann hafi átt í samskiptum við rússneska fulltrúa er hann starfði í New York. Hann heldur því hins vegar fram að ummæli Tretyakov séu misvísandi.
Sænska leyniþjónustan fékk upplýsingar um málið frá bandarísku leyniþjónustunni. Fram kemur í frétt Expressen að saksóknarinn Tomas Lindstrand hafi hafið rannsókn á ásökunum um njósnir árið 2002.
Þremur mánuðum síðar hafi rannsókninni verið hætt, þar sem fyrst og fremst hefði verið um pólitíska upplýsingar sem embættismaðurinn hefði komið á framfæri.
„Svo litið yrði á þetta sem njósnir, þá verð ég að sanna að upplýsingarnar sem láku hafi varðað þjóðaröryggi, og það er erfitt að færa sönnur á það í þessu máli sem tengist pólitískum upplýsingum segir Lindstrand í samtali við Expressen.
Erlent »
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. apríl 2010, Erlent Vill breyta sænskum lögum um njósnir
- Mánudagur, 26. október 2009, Erlent Jan Guillou var njósnari KGB
- Mánudagur, 28. september 2009, Erlent Sex handteknir í Svíþjóð
- Fimmtudagur, 10. mars 2011, Erlent „Óviðeigendi tengsl"
- Fimmtudagur, 7. janúar 2010, Erlent Hafði milligöngu um skiltisþjófnað
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































