Brotist inn í heimili látinna
Tvívegis hefur verið brotist inn í hús hjóna sem fórust í flugslysi við Sæby á Norður-Jótlandi á annan dag páska. Tvær dætur hjónanna voru með þeim í flugvélinni og lifðu þær flugslysið af. Sú eldri, 25 ára gömul, lést í gær af sárum sínum. Systir hennar, 17 ára, er enn á sjúkrahúsi í Álaborg.
Athafnamaðurinn Niels Birch Nielsen var á ferð með fjölskyldu sinni í einkaflugvél þeirra af gerðinni Piper Cherokee Warrior PA-28 151 þegar flugvélin fórst við Sæby. Þau voru á leið frá Læsø til Sindal, að sögn Berlingske Tidende.
Fyrst var brotist inn í hús fjölskyldunnar, í Horne norðan við Hjørring, aðfaranótt þriðjudagsins eftir páska. Aftur var brotist inn í húsið síðastliðna nótt. Talsmaður lögreglunnar telur að tengsl séu á milli innbrotanna. Innbrotsþjófunum tókst að komast hjá því að gangsetja viðvörunarkerfi hússins.
Í fyrra innbrotinu var farið inn um svalahurð og rótað í ýmsum hirslum. Þá var stolið tveimur sérhönnuðum stólum, minkapels og skartgripum. Þjófarnir fundu lyklana að Mercedes bifreið húsbóndans og stálu henni. Bíllinn fannst á þriðjudagsmorgun með sprungið dekk.
Í nótt sem leið stálu þjófar öðrum bíl fjölskyldunnar, VW Touran, sem lögreglan hefur lýst eftir. Lögreglan í Norður-Jótlandi vinnur að rannsókn málsins. Hún segir fleiri dæmi um að þjófar hafi notfært sér slys og dauðsföll fólks til að brjótast inn í heimili.
Erlent »
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. maí 2009, Erlent Árásarmaðurinn lést í nótt
- Mánudagur, 30. nóvember 2009, Erlent Hrikalegt val föður
- Föstudagur, 3. desember 2010, Erlent Yfir 20 ára fangelsi fyrir tvöfalt morð árið 1991
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































