Forsetans minnst með viðhöfn
Flogið var í dag með lík Lech Kaczynski, forseta Póllands til Varsjár, ásamt líkum einhverra þeirra 95 sem einnig fórust í flugslysinu í gærmorgun. Tekið var á móti líkamsleifunum með hernaðarlegri viðhöfn áður en þær voru fluttar til forsetahallarinnar, þar sem fólk hefur safnast saman til að votta Kaczynski virðingu sína. Viku þjóðarsorg hefur verið lýst í Póllandi.
Forsetinn, yfirmenn hersins og þingmenn pólska þingsins voru á leið til Smolensk í Rússlandi til að taka þátt í minningarathöfn um rúmlega 20 þúsund pólska liðsforingja og liðsforingjaefni sem Sovétmenn myrtu í Katyn-skógi 1940 þegar flugvélin fórst. Engir þeir sem í vélinni voru lifðu slysið af og segja yfirvöld í Rússlandi flugmenn hafa flogið vélinni of lágt.
Bronislaw Komorowski, forseti pólska þingsins sem nú gegnir embætti forseta tók þátt í athöfninni á flugvellinum í Varsjá, ásamt forsætisráðherranum, Donald Tusk, og Jaroslaw Kaczynski, bróður forsetans.
Eftir stutta trúarathöfn var kistan keyrð í hernaðarfylgd til forsetahallarinnar þar sem almenningur mun geta vottað Kaczynski virðingu sína. Lík forsetafrúarinnar Maríu Maria Kaczynska, sem einnig fórst í slysinu, er þó enn í Rússlandi þar sem ekki hefur tekist að bera kennsl á líkamsleifar hennar.
Messur í minningu hinna látnu hafa verið haldnar víðsvegar um Pólland, auk tveggja mínútna klukkuspils og sírenuhljóms í morgun. Á sama tíma söfnuðust landsmenn saman á torgum og götum bæja og stóðu saman í þögn.
Vladimír Pútin, forsætisráðherra Rússlands, tók þátt í minningarathöfn um fórnarlömb slyssins í Rússlandi í gær og segir BBC hann hafa heitið því að hafa persónulega umsjón með rannsókn slyssins. Hafa rússnesk og pólsk yfirvöld nú fundið flugrita vélarinnar og vinna að sameiginlegri rannsókn.
Erlent »
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. júní 2010, Erlent Enginn með meirihluta í Póllandi
- Mánudagur, 26. apríl 2010, Erlent Kaczynski býður sig fram til forseta
- Þriðjudagur, 13. apríl 2010, Erlent Forsetahjónin jörðuð á sunnudag
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Erlent Ferðareglur yfirmanna yfirfarnar
- Mánudagur, 19. apríl 2010, Erlent Líklegur til að bjóða sig fram í embætti bróður síns
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja




































