Wikileaks hyggst birta myndband af árás á afganska borgara
Wikileaks vefurinn undirbýr nú að birta myndband af loftárás Bandaríkjamanna í Afganistan, sem sögð er hafa orðið fjölda manns að bana. Að sögn breska dagblaðsins Daily Telegraph er um að ræða myndefni úr bandarískri herflugvél sem send var til að varpa sprengjum á uppreisnarmenn Talibana í Farah héraðinu á síðasta ári.
Afgönsk stjórnvöld sögðu á þeim tíma sem árásirnar voru gerðar að þær hefðu orðið 147 almennum borgurum að bana. Óháð afgönsk rannsókn sýndi síðar að 86 höfðu farist.
Myndefni af árásinni er talið geta komið illa við afgönsku stjórnina, sem nýtur stuðnings Nato, sýni myndbandið að flugmennirnir hafi lítið gert til að tryggja öryggi almennra borgara.
Átakanlegt myndband úr bandarískri herþyrlu sem sýndi hermenn skjóta á íraska borgara í Bagdad, þar með talið tvo blaðamenn, vakti mikla reiði er það var birt á vef Wikileaks í síðustu viku.
Einungis brot var birt af rannsókn Bandaríkjamanna á atburðunum í Farah 4. maí í fyrra. Þar var áætlað að 26 manns hefðu látið lífið, en þó sleginn sá varnagli að „enginn muni nokkurn tímann geta ákveðið endanlega hversu margir almennir borgarar féllu.“
Herflugvélarnar vörpuðu ítrekað 500 og 2.000 punda sprengjum á meðan að hermenn börðust við vopnaða Talibana og reyndu að koma særðum hermönnum undan.
„Vangeta til að aðgreina almenna borgara og forðast/ eða lágmarka þann fórnarkostnað olli óviljandi falli almennra borgara,“ sagði í bandarísku skýrslunni.
Talsmaður afgönsku stjórnarinnar kveðst hafa heyrt að Wikileaks hyggist birta myndefnið. Starfsmenn Wikileaks segja sæta ógnunum og að bandaríska leyniþjónustan reyni nú að loka vefsvæðinu eftir í kjölfar þeirra gagna sem birt hafa verið á vefnum undanfarið.
Erlent »
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Erlent Bandaríkjastjórn segist ekki vinna með Wikileaks
- Miðvikudagur, 18. ágúst 2010, Erlent Wikileaks og Bandaríkjaher í viðræðum
- Fimmtudagur, 12. ágúst 2010, Erlent Von á 15.000 skjölum í viðbót
- Sunnudagur, 25. júlí 2010, Erlent Bandaríkin fordæma birtingu leyniskjala
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Erlent Skjalaleki gæti skaðað tengsl Rússa og Bandaríkjamanna
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja


































