Erlent
| mbl
| 12.4.2010
| 10:00
Var tungumálaörðugleikum um að kenna?
Sífellt berast nýjar upplýsingar sem menn vonast til að geti varpað ljósi á hið hörmulega flugslys í Rússlandi þegar flugvél forseta Póllands hrapaði með þeim afleiðingum að allir um borð létust.
Samkvæmt því sem fram kemur í rússneskum fjölmiðlum átti pólski flugstjórinn og rússneski flugumferðarstjórinn erfitt með að skilja hvor annan og telja menn að það hafi leitt til þess hvernig fór.
„Flugstjórar eiga að gefa upp flughæð sína áður en þeir byrja að reyna að lenda, en það var ekki gert í þessu tilviku,“ segir Paul Plyusnin, flugumferðarstjóri á Smolensk flugvellinum, í samtali við rússneska fjölmiðilinn Life News.
Að sögn flugumferðarstjórans reyndist flugstjóranum erfitt að gefa upplýsingar um flughæð vélar sinnar þar sem hann talaði litla sem enga rússnesku. Segir hann samtal þeirra hafa farið fram á rússnesku, en að það hafi tekið langan tíma áður en flugstjórinn gat svarað þeim spurningum sem flugumferðstjórinn beindi til hans.
Paul Plyusnin segist hafa hvatt flugstjórann til að velja annan flugvöll þar sem mikil og þykk þoka lægi yfir flugvellinum í Smolensk og því væri völlurinn í reynd ekki nothæfur.
„Ég ráðlegg þér eindregið frá því að lenda hér,“ segist flugumferðastjórinn hafa sagt við flugstjórann. Þrátt fyrir þessa viðvörun reyndi flugstjórinn í fjórgang að lenda vélinni á Smolensk flugvellinum. Í síðustu tilrauninni rakst flugvélin í tré með þeim afleiðingum að hún hrapaði til jarðar og fórust allir sem um borð voru.
Fyrr í dag kom í rússneskum fjölmiðlum fram að flugstjórinn hefði losað sig við stóran hluta af eldsneyti vélarinnar fyrir fyrstu lendingartilraun sína, en slíkt þykir fáheyrt í flugbransanum. Það á að hafa verið ástæðan fyrir því að flugstjórinn sé sér ekki fært að fljúga vélinni á annan flugvöll og hélt því til streitu að lenda í Smolensk.
Í öðrum rússneskum fjölmiðlum hefur verið gefið í skyn að Kaczynski forseti Póllands hafi sjálfur sett pressu á flugstjórann að lenda í Smolensk.
Enn er ekki vitað fyrir víst hvað olli flugslysinu, en verið er að rannsaka svörtu kassa vélarinnar. Dimitri Medvedev Rússlandsforseti hefur komið á fót rannsóknarnefnd um málið sem Vladimir Putin forsætisráðherra landsins fer fyrir.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlent »
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
Mánudagur, 21.5.2012
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
- News of the World
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. apríl 2010, Erlent Losaði flugstjórinn sig við of mikið eldsneyti?
- Mánudagur, 24. janúar 2011, Erlent Ættingjum boðnar skaðabætur
- Miðvikudagur, 19. maí 2010, Erlent Ítrekað var varað við lendingu
- Sunnudagur, 6. júní 2010, Erlent Lögreglumenn notuðu kreditkort látins manns
- Laugardagur, 10. apríl 2010, Erlent Flugmenn hunsuðu fyrirmæli
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
-
Lífeyrisþegar dragast aftur úr
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C
Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetnig bæði fyrir hestafólk o...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
Coleman Redwood
Til sölu Coleman Redwood fellihýsi árg. 2000.
Skoðað 2013.
Fortjald, ísskápur,...