Rússneskir stjórnarandstæðingar leiddir í gildru?

Mennirnir eiga það sammerkt að hafa gagnrýnt Vladimir Putin, forsætisráðherra og fyrrverandi forseta. stækka

Mennirnir eiga það sammerkt að hafa gagnrýnt Vladimir Putin, forsætisráðherra og fyrrverandi forseta. RIA NOVOSTI

Þrír stjórnarandstæðingar í Rússlandi hafa síðastliðna viku lent í einu og sama kynlífshneykslinu. Myndband fór af stað á internetinu, sem sýndi þá alla að stunda kynlíf með sömu stúlkunni, í sama svefnherberginu, en á mismunandi tímum.

Hefur þetta vakið upp vangaveltur um það hvort þeir hafi verið leiddir í gildru af FSB, leyniþjónustu Rússlands. Forveri hennar, KGB, sérhæfði sig á sínum tíma í því að leiða menn í slíka gildru, til þess að geta svo hótað þeim eða fjárkúgað þegar á þurfti að halda.

Mennirnir þrír eru Viktor Shenderovich, frjálslyndur penni sem skrifað hefur gagnrýnið um Vladimir Pútín forsætisráðherra, Eduard Limonov, stofnandi bolsévíkaflokksins sem hefur verið bannaður og Alexander Belov, fyrrverandi leiðtogi hins þjóðernissinnaða flokks Hreyfing gegn ólöglegum innflytjendum. Shenderovich og Belov, sem báðir eru kvæntir, hafa staðfest við fjölmiðla að það séu þeir sem sjáist á myndbandinu.

Stúlkan á myndbandinu er löguleg, brúnhærð fyrirsæta sem gengur undir nafninu Katya. Hún fær mennina upp á herbergi sín með tilboðum sem erfitt er að hafna. Í herberginu eru faldar myndavélar og myndefnið svo klippt saman svo úr verði sem allra hneykslanlegast athæfi. Allt að sex manns hafa nú látið Kötju ginna sig, og eiga það allir sammerkt að hafa gagnrýnt Pútín.

Myndbandið hefur vakið mikla reiði í rússneskum bloggheimum og fjölmiðlum, og dregið mjög úr vægi mannanna sem þar sjást og áliti fólks á þeim. „Í meira en tíu ár hef ég gert athugasemdir við athæfi herra Pútíns og bolabrögð stjórnar hans… (þeir) hlustuðu áhugalausir á mig og neituðu engu, en svöruðu svo með þessum ólöglega sora,” hefur Shenderovich skrifað á bloggið sitt.

Limonov, sem er fráskilinn, bloggaði einnig um myndbandið. „Ég sé ekkert athugavert við þá staðreynd að stjórnarandstæðingar séu ekki frábitnir konum.“

Talið er að þeir sem gerðu myndbandið hafi kunnað vel til verka. Nafnlaus hópur kom því af stað, á vefsíðu sem kennd er við áður óþekkt samtök, Hina borgaralegu nefnd um vernd siðgæðis, laga og samfélagssáttmála.

Mörg sjónarhorn eru í myndbandinu, auk þess sem tónlist og myndbrot úr vinsælum gamanþætti eru notuð með til að auka á niðurlægingu mannanna. Andlit Kötju er hins vegar ruglað. Kirill Kabanov, fyrrverandi FSB-útsendari, hefur sagt dagblöðum að atvinnumenn þurfi til að gera slíkt myndband. “Það þarf að fylgjast með skotmarkinu, hlera símann hans, vita um ferðir hans fram í tímann og tryggja að hann sé grunlaus.“

Alexei Kondaurov, fyrrverandi KGB foringi, hefur hins vegar sagt að ólíklegt sé að leyniþjónustan tengist þessu. „Líklegra er að það hafi verið einkarekin öryggisfyrirtæki sem hafa haft yfir réttum tæknibúnaði að ráða.”

Málið kom fyrst upp í marsmánuði, þegar myndband kom út sem sýndi Mikhail Fishman, ritstjóra rússnesku útgáfu Newsweek, að taka kókaín við hliðina á stúlku á nærfötum einum klæða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.

Breivik ætlar ekki að áfrýja

14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »
Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá myndskeið

Evruskuldabréf aftur á dagskrá
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLACKLION SUMARDEKK
Blacklion sumardekk - pakkatilboð 195/65 R 15 kr. 52.900. 205/55 R 16 kr. 63...
Toyota RAV4 2WD árgerð 2003 Verð 690 þ
120 þ.km, 5 dyra, Beinsk, 2WD, SRS, ABS, bremsur ok, Heilsársdekk+3vet, CD OK, s...
Bumbo barnastóll
Lítið notaður Bumbo barnastóll til sölu á hálfvirði. Upplýsingar í síma 862 30...
Til sölu Schwinn 16" stúlknareiðhjól.
Mjög vel farið. Fjólublátt með körfu. Hjálpardekk fylgja. Verð 12.000 kr. Haf...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...