Hermenn skutu óbreytta borgara

Hermenn í Afganistan.
Hermenn í Afganistan. GORAN TOMASEVIC

Hermenn alþjóðaherliðsins í Afganistan skutu tvær konur og eina stúlku til bana, þegar þær voru að ferðast í bíl í suðurhluta landsins í dag. Þetta hefur AFP fréttastofan eftir talsmanni innanríkisráðuneytis Afganistans.

„Bílalest alþjóðaherliðsins hóf skothríð á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt, haldandi að þar væru Talibanar á ferð,” segir Zemarai Bashary. „Tvær konur og ein stúlka létu lífið og önnur kona særðist,” segir hún.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert