Ofbeldismaður lést í gæsluvarðhaldi

Argentínskur karlmaður sem ákærður hafði verið fyrir að eignast sjö börn með dóttur sinni lét lífið meðan hann sat í gæsluvarðhaldi og beið réttarhalds.

Að sögn fangelsismálayfirvalda lést maðurinn af völdum öndunarfærasjúkdóms eftir flutning milli fangelsi í Argentínu. Maðurinn var ákærður fyrir að beita dóttur sína kynferðislegu ofbeldi í rúma tvo áratugi. Ofbeldið hófst þegar dóttir mannsins var átta ára gömul, en hún er núna um þrítugt. Maðurinn var einnig ákærður fyrir að nauðga tveimur öðrum dætrum sínum.

Eftir því sem fjölmiðlar greina frá bjó maðurinn ásamt dætrum sínum, börnum þeirra, og seinni eiginkonu sinni. Dóttirin sem þola mátti ofbeldið lengst hafði samband við yfirvöld og óskað eftir aðstoð í kjölfar þess að faðir hennar hótaði að beita eina dóttur hennar kynferðislegu ofbeldi.

















  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Júlía Tímósjenkó fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu situr nú í fangelsi.

Tímósjenkó veik og kvalin í fangelsi

19:04 Fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Júlí Tímósjenkó, er „veik og líður stöðugar kvalir" að sögn kanadískra lækna sem skoðuðu hana í fangelsinu. Þeir sögu jafnframt að yfirvöld hefðu bannað þeim að gera mikilvægar blóð- og eitrunarprufur á henni. Meira »
Bradley Manning í handjárnum.

Manning formlega ákærður

18:43 Bandaríski hermaðurinn Bradley Manning var í dag formlega ákærður og stefnt fyrir herrétt, fyrir að hafa lekið bandarískum leyniskjölum til WikiLeaks. Hann gæti átt ævilangt fangelsi yfir höfði sér. Meira »

Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu

16:42 Fjölmargir Argentínumenn leituðu örvæntingarfullir að ástvinum á spítölum Buenos Aires í dag í von um að þeir hefðu lifað af lestarslys í gærkvöldi sem kostaði 50 manns lífið. Hundruð eru slasaðir og hefur tveggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir í landinu. Víða má sjá flaggað í hálfa stöng. Meira »

Sextán létust í snjóflóðum

Þorspbúar skoða ummerki eftir snjóflóðið.
15:42 Að minnsta kosti 16 hermenn létust og þriggja er enn saknað eftir tvö mikil snjóflóð í Kasmír-héraði á Indlandi í nótt. Herbúðir eru að hluta til grafnar undir fönn og varað er við fleiri flóðum. Meira »

Leita enn að líkum um borð myndskeið

Costa Concordia björgun
14:37 Enn er leitað að líkum sjö manna sem saknað er eftir að skemmtiferðaskipið Costa Concordia sökk undan ströndum ítölsku eyjunnar Giglio. Lík fimm ára stúlku fannst í gær en faðir hennar fórst einnig í slysinu. Meira »

Verðir áfram í varðhaldi

Ítalski öryggisvörðurinn Salvatore Girone á leið úr dómshúsinu.
16:20 Indverskur dómstóll hefur dæmt tvo verði af ítölsku olíuflutningaskipi í áframhaldandi gæsluvarðhald. Mennirnir skutu tvo indverska sjómenn til bana. Þeir héldu að mennirnir væru sjóræningjar. Meira »

Vilja flytja lík Colvin frá Sýrlandi

Marie Colvin. Hún missti sjónina á öðru auga í Sri Lanka árið 2001 en lét ...
14:59 Flytja á breskan ljósmyndara, sem særðist í Homs í Sýrlandi í gær í árás sem varð tveimur vestrænum félögum hans að bana, úr borginni sem fyrst. Að sögn breska utanríkisráðuneytisins á að flytja Paul Conroy til nágrannaríkis þar sem hann mun fá læknisaðstoð. Eki hafa fengist upplýsingar um hvort hann sé enn í Homs eða hvort hann sé lagður af stað. Meira »

Sjö hermenn létust í þyrluslysi

Bandarískir hermenn. Myndin er úr safni.
14:24 Sjö landgönguliðar létust á heræfingu í gærkvöldi í Arizona í Bandaríkjunum þegar tvær þyrlur skullu saman.  Meira »

Látin hlaupa í 3 tíma í refsingarskyni

Savannah Hardin.
13:35 Tvær bandarískar konur hafa verið handteknar eftir að þær létu níu ára stúlku hlaupa í þrjár klukkustundir samfleytt með þeim afleiðingum að hún fékk krampakast vegna ofþornunar og dó nokkrum dögum síðar. Voru konurnar að refsa stúlkunni fyrir að hafa logið að annarri þeirra. Meira »

Segja Ben Bella ýmist lífs eða liðinn

Ahmed Ben Bella.
12:58 Misvísandi fréttir berast nú af því hvort Ahmed Ben Bella, fyrrum forseti Alsírs, sé lífs eða liðinn. Eitt dagblaðanna þar í landi hefur greint frá því að Ben Bella sé látinn, 96 ára að aldri, en alsírsk fréttastofa segir hann í stöðugu ástandi á spítala. Meira »

Obama biðst afsökunar á bókabrennu

Mótmælt skammt frá Kabúl.
13:20 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sent Hamid Karzai, forseta Afganistan, afsökunarbeiðni vegna bandarískra hermanna í Bagram-stöðinni sem vanvirtu íslam með því að brenna Kóraninn og fleiri helgirit múslima. Meira »

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.
11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.
11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flygill til sölu
Fallegur flygill til sölu. Lengd 150 cm. Ný yfirfarinn, mjög gott hljóðfæri. Ás...
Ikea rúm 140x200 til sölu
Ikea Aspelund rúmgafl 140x200. 2x Sultan Luröy rimlabotn 70x200 og Aspelund nát...
Sendibílar www.keyrsla.is
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Fyrirtækjaþjónusta sjá á www.keyrsla.is og s...
Margnota hitapúðar
Í hitapúðunum er álplata sem er beygluð og hitnar vökvinn þá upp í allt að 40-50...
 
Stúkan helgafell
Félagsstarf
m HELGAFELL 6012022219 VI...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma sunnudag kl. 17 Ágúst Val...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....