Netanyahu lýsir stuðningi við herinn
Maður lest í Kóraninum um borð í skipinu áður en ísraelsku sérsveitarmennirnir réðust til atlögu. Reuters
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur lýst fullum stuðningi við Ísraelsher í kjölfar árásar sérsveitarmanna sjóhersins á skipalest með hjálpargögn undan Gasaströnd í nótt.
Netanyahu er í opinberri heimsókn í Kanada og mun eiga fund með Stephen Harper, forsætisráðherra, í Ottawa í dag. Ferð Netanyahus er einnig heitið til Washington í Bandaríkjunum þar sem fundur með Barack Obama, Bandaríkjaforseta, er á dagskránni.
Ísraelska útvarpið sagði í morgun að Netanyahu hefði ákveðið að stytta heimsókn sína vegna árásarinnar á hjálparskipin. Skrifstofa forsætisráðherrans hefur hins vegar ekki staðfest það.
Margar þjóðir hafa fordæmt árásina og krafist skýringa frá Ísraelsmönnum. Utanríkisráðuneyti Rússlands fordæmdi í dag gróft brot Ísraels á alþjóðalögum með því að beita vopnum gegn óbreyttum borgurum á alþjóðlegu hafsvæði.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að sér væri brugðið vegna frétta af árásinni. Hvatti hann Ísraelsmenn til að gefa skýringar á árásinni, þar sem 19 eru sagðir hafa látið lífið og 36 særst, flestir Tyrkir.
Talsmaður Hvíta hússins sagði, að Bandaríkjastjórn harmaði manntjónið, sem varð, og ynni nú að því að afla upplýsinga um þennan harmleik.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði í fréttum Útvarpsins, Ísraelsmenn brjóti alþjóðalög á íbúum Gasasvæðisins og haldi þeim í risastóru fangelsi. Sagði hann að íslensk stjórnvöld tæki undir þær kröfur sem hafi komið fram, meðal annars frá Evrópusambandinu, um að þetta mál verði rannsakað í þaula. „Það er ekki hægt að þola það að Ísraelsmenn beiti ítrekað valdi með þessum hætti” sagði Össur.
Erlent »
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Strauss-Kahn fyrir dóm í mars
- Samkynhneigðir „ekki ofsóttir“ í Úganda
- Keyrði á fullum hraða á vegg
- Heilsuleysi Chavez veldur óvissu
-
Myrti fjóra í heilsulind
- Áfram mótmælt í Valencia
- Króatískir mjólkurbændur mótmæla
-
7.636 látnir í Sýrlandi
- Rússneskir fjölmiðlar beittir þrýstingi
- Garzón biðlar til hæstaréttar
- Cherie Blair höfðar mál
- Strauss-Kahn laus síðar í dag
- Telja ekki þörf á dönsku þjóðaratkvæði
-
Að minnsta kosti 49 látnir
- Mannskætt lestarslys í Argentínu
- Nauðgaði og myrti ólétta unglingsstúlku
- Stóll til að gista á
- Reynt að forða útburði
- Franskt þorp til sölu
-
Vissu ekki af blaðamönnunum
- Fordæma harðræði öryggissveita
- 40 látnir af völdum Lassa-hitasóttar
- Söfnuðu upplýsingum um múslíma
- Jarðskjálfti á Maluku-eyjum
- ESB frystir greiðslu til Ungverja
- Fundað um Sýrland í Túnis
- Smíða háþróaðan kafbát fyrir Ísrael
- Var drukkinn og man ekki neitt
- Hundruð þúsunda Þjóðverja orkulaus
- Tveir blaðamenn drepnir í Homs
- Engar sumarbúðir í Útey í ár
- Boðið upp á hraðskilnaði
- Sofnaði á vaktinni og var laminn
- Banna geldingu kynferðisbrotamanna
-
Slepptu 185 fiðrildum lausum
-
Strauss-Kahn gisti klefa í nótt
- Utanríkisráðherra segir af sér
- Fengu ekki að sinna eftirliti
Þriðjudagur, 21.2.2012
- Töldu fanga tala saman gegnum Kóraninn
- 359 létust vegna sígarettuglóðar
- 18 ára nauðgaði og drap 98 ára konu
- Kaldir skólar og enginn salernispappír
- Spjaldtölvur í gulu leigubílana?
- Væntanlega úrskurðaður í gæsluvarðhald
-
Uppbygging ári eftir skjálftann
- Banvænn hrekkur
- Norðmaður grunaður um mansal
- Dani hótaði að sprengja sig í loft upp
-
Forsetakosningar í Jemen
-
Yfirmaður hjá Olympus framdi sjálfsvíg
- 100 fallnir í ættbálkadeilum
- Danskur hermaður dæmdur
- Strand skemmtiferðaskipsins Costa Concordia
- News of the World
- Strauss-Kahn handtekinn
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Sýrland
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. maí 2010, Erlent Netanyahu snýr heim
- Mánudagur, 31. maí 2010, Erlent Netanyahu: Höfðu lífið að verja
- Þriðjudagur, 6. júlí 2010, Erlent „Áhætta vegna friðar“
- Sunnudagur, 13. júní 2010, Erlent Ísraelar taka herkvína við Gaza til skoðunar
- Fimmtudagur, 11. mars 2010, Erlent Harmar tilkynningu um nýja gyðingabyggð
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
Önnur störf
VAT N A J Ö K U L S ÞJ Ó Ð G A R Ð U R ...




































