Tyrkir taka hart á pyntingum
Fáni Tyrklands. AP
Dómstóll í Tyrklandi komst í dag að þeirri niðurstöðu að forstöðumaður fangelsis sem og þrír fangaverðir skyldu sæta lífstíðarfangelsi vegna dauða vinstrisinnaðs aðgerðarsinna sem lést árið 2008 í kjölfar pyntinga innan veggja fangelsisins.
Málið hefur vakið mikla athygli í Tyrklandi, en auk mannanna fjögurra voru 17 starfsmenn fangelsisins sem hlutu dóm. Margir litu á málið sem ákveðinn prófstein fyrir tyrkneska réttarkerfið þegar kemur að meðhöndlun þess á pyntingum og illri meðferð fanga, en Tyrkir hafa um nokkurra ára skeið sóst eftir aðild að Evrópusambandinu.
Forsaga málsins er sú að Engin Ceber var 28. september 2008 hnepptur í varðhald ásamt nokkrum vinum sínum í framhaldi af mótmælum gegn ofbeldi lögreglunnar í höfuðborginni Istanbul. Honum var haldið föngnum yfir nótt á lögreglustöðinni og síðan varpað í fangelsi meðan hann beið réttarhalds þar sem hann var ákærður fyrir að veita lögreglumönnum mótspyrnu. Hann lést 10. október eftir að hafa legið á spítala í dauðadái í nokkra daga.
Samkvæmt því sem fram kemur í þarlendum fjölmiðlum mun Engin Ceber hafa hlotið nokkra alvarlega höfuðáverka sem ollu heilablæðingu sem leiddu hann til dauða. Við yfirheyrslur fyrir dómi lýstu samfangar hans sem og fangaverðir því hvernig Ceber var barinn bæði á lögreglustöðinni og í fangelsinu. Lýstu þeir barsmíðunum sem svo að hann hefði verið kýldur og í hann sparkað auk þess sem höfði hans hafi ítrekað verið barið utan í vegg. Tóku þeir fram að Ceber hafi verið neitað um læknisaðstoð í tæka tíð þegar hann féll í ómegin.
Sem fyrr segir komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að forstöðumaður fangelsisins sem og þrír fangaverðir beri höfuðábyrgð á dauða Cebers og voru þeir því dæmdir í lífstíðarfangelsi.
Tveir fangaverðir til viðbótar sem og tveir lögreglumenn voru dæmdir í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir pyntingar sínar á Ceber. Læknir fangelsisins var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að falsa dánarvottorð Cebers. Tólf aðrir, þeirra á meðal fangaverðir, voru dæmdir í fimm mánaða til tveggja og hálfs árs fangelsis vegna misnotkunar á valdi sínu. Alls voru 39 menn sýknaðir í málinu.
Allir fangaverðirnir sem ákærðir voru í málinu neituðu sök og héldu því fram að Ceber hafi virst veiklulegur, neitað að standa upp þegar nafnakall fór fram og dottið og rekið höfuð sitt utan í vegginn þegar reynt var að reisa hann við.
Embættismenn hjá ESB sem og mannréttindafrömuðir í Tyrklandi hafa áhyggjur af því að pyntingar og ill meðferð fanga fari vaxandi í landinu, eftir að hafa farið minnkandi um og upp úr síðustu aldamótum.
Gagnrýnendur halda því fram að þrátt fyrir að stjórnvöld haldi því fram að þeir líði ekki pyntingar þá sé lítið sem ekkert gert úr þeim kvörtunum um pyntingar sem berist inn á borð yfirvalda. Mehmet Ali Sahin, dómsmálaráðherra landsins, bað fjölskyldu Cebers afsökunar á dauða hans en það þótti algjört nýmæli á sínum tíma.



































