Íranar freista þess að rjúfa hafnarbannið
Íranski rauði hálfmáninn hyggst senda þrjú skip hlaðin hjálpargögnum til Gaza og hvetja sjálfboðaliða til þess að leggja samtökunum lið og fylgja skipunum á leiðarenda í tilraun til þess að rjúfa hafnarbannið sem ríkt hefur í Gaza. Frá þessu er greint í írönskum ríkisfjölmiðlum.
Þar er haft eftir Abdolrauf Adibzadeh, yfirmanni Íranska rauða hálfmánans, að ákvörðunin hafi verið tekin í framhaldi af fundi samtakanna í utanríkisráðuneyti landsins. Segir hann ráðgert að senda tvö skipanna hlaðin hjálpargögnum undir lok vikunnar og þriðja skipið síðar.
Skipunum verði stefnt að Gaza í nánu samstarfi við tyrknesk stjórnvöld. Jafnframt sé ætlunin að senda flugvél með 30 tonn af lyfjum og læknisbúnaði til Egyptalands, í samráði við Egypska rauða hálfmánann, og freista þess að hægt verði að koma sendingunni áleiðis til Gaza.
„Í öðru skipinu verða 70 sjálfboðaliðar á borð við hjúkrunarfólk og læknar, en í hinu verða nauðþurftir og læknisbúnaður,“ er haft eftir Adibzadeh. Þess má geta að Íranski rauði hálfmáninn reyndi undir lok árs 2008 að senda skip hlaðið matvælum og lyfjum til Gaza, en það var stöðvað af hálfu ísraelska sjóhersins.
Stutt er síðan ísraelski sjóherinn stöðvaði skipalest sex skipa sem reyndu að rjúfa hafnarbann ísraelskra stjórnvalda á Gaza. Aðgerðir sjóhersins leiddi til dauða a.m.k. níu aðgerðarsinna auk þess sem fjöldi skipverja slasaðist.
Að sögn Ramin Mehmanparast, utanríkisráðherra Írans, eru hjálparskipin sem send eru til Gaza táknræn til þess að berjast gegn hafnarbanninu.
„Haldi þessi táknræna barátta áfram þá mun hún leiða til þess að yfirráð síonista líða undir lok, en það væri einn stærsti ósigur þeirra,“ lét ráðherrann hafa eftir sér í vefsjónvarpi ríkisins.
Erlent »
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Fimm létust í sprengjuárás í Damaskus
- Glæpir gegn mannkyni í Sýrlandi?
- Táknræn athöfn haldin
- Harður jarðskjálfti í Búlgaríu
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
- Sýrland
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. júní 2010, Erlent Írönsk hjálparskip til Gaza
- Föstudagur, 1. júlí 2011, Erlent Stöðvuðu skip á leið til Gaza
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Erlent Tyrkneska hjálparskipið á heimleið
- Sunnudagur, 30. maí 2010, Erlent Nær hjálparskipið landi?
- Fimmtudagur, 3. júní 2010, Erlent Aðgerðarsinnar jarðsettir í Istanbúl
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina


































