Von á afsögn Vanhanen í dag
Vanhanen, sem hefur gegnt embætti forsætisráðherra frá árinu 2003, greindi frá því í desember að hann ætlaði að hætta sem formaður Miðflokksins á næsta flokksþingi en það var haldið um síðustu helgi. Hann greindi einnig frá því á sama tíma að hann væri reiðubúinn til að láta af embætti forsætisráðherra áður en kjörtímabilinu lyki.
Hann sagði ástæðuna fyrir væntanlegri afsögn vera uppskurður sem hann þarf að fara í síðar á árinu en stjórnmálaskýrendur segja skýringuna allt aðra. Hið rétta ástæða séu hneykslismál sem tengjast fjármálum hans og flokksins.
Í gær að loknum fundi leiðtoga ríkja Evrópusambandsins í Brussel sagði Vanhanen við fréttamenn að hann myndi greina frá ástæðunni eftir nokkur ár. „En það er ekkert hneyksli tengt þessu. Og það munu allir örugglega skilja ástæðuna," er haft eftir Vanhanen í Helsingin Sanomat í dag.
Er líklegt að nýr forsætisráðherra verði kjörinn á finnska þinginu á þriðjudag og í kjölfarið muni Vanhanen og ríkisstjórn hans segja af sér og ný vera skipuð.
Mari Kiviniemi, 41 árs ráðherra sveitastjórnarmála, verður væntanlega næsti forsætisráðherra en hún fór með sigur af hólmi þegar formannskjör fór fram í Miðflokknum um síðustu helgi. Hún hefur setið á þingi frá árinu 1995 og varð fyrst ráðherra árið 2005.
Ef hún verður valin forsætisráðherra þá mun hún væntanlega gegna embætti forsætisráðherra þar til þingkosningar fara fram í apríl á næsta ári.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. júní 2010, Erlent Vanhanen segir af sér
- Þriðjudagur, 22. júní 2010, Erlent Mari Kiviniemi nýr forsætisráðherra Finnlands
- Þriðjudagur, 12. október 2010, Erlent Akveðið að rannsaka störf Vanhanens
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Erlent Framferði Vanhanen rannsakað
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Erlent Vanhanen hættir í júní
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































