Obama rekur McChrystal

Stanley McChrystal gengur á fund Obama forseta í Hvíta húsinu í dag. stækka

Stanley McChrystal gengur á fund Obama forseta í Hvíta húsinu í dag. Reuters

Barack Obama Bandaríkjaforseti rak fyrir stundu Stanley McChrystal, yfirmann bandaríska heraflans í Afganistan, vegna opinberrar gagnrýni hans á framgöngu Bandaríkjastjórnar í landinu. McChrystal lét ummælin falla í viðtali við tímaritið Rolling Stone.

Greint var frá brottrekstrinum eftir fund McChrystal með Obama í Hvíta húsinu og mun hershöfðinginn David Petraeus taka við stöðu hans.

Fram kemur á vef breska útvarpsins, BBC, að Hamid Karzai, forseti Afganistans, hafi gefið til kynna að hann vildi ekki að McChrystal yrði látinn víkja.

Hefur BBC jafnframt eftir heimildarmanni að fráfarandi yfirmaður heraflans í Afganistan sé hæfasti maðurinn sem leitt hafi herliðið í landinu frá því stjórn talibana var steypt af stóli haustið 2001.

Afdrifaríkt viðtal

McChrystal lét þung orð falla í áðurnefndu viðtali, „The Runaway General“, en þar gagnrýndi hann embættismenn í stjórn Obamas fyrir framgöngu þeirra í Afganistan. 

Hann hefur síðan beðið einlægrar afsökunar á ummælunum og sagt þau til marks um dómgreindarbrest, afsökun sem greinilega dugði ekki.

Fyrirsögn greinarinnar í íslenskri þýðingu er Herforingi á flótta og er það Michael Hastings sem skrifar hana. Blaðið kemur út á föstudag en McChrystal sendi frá sér afsökunarbeiðni í gær þar sem hann biðst innilegrar velvirðingar og segir að hann sýni dómgreindarskort í viðtalinu.

Í greininni segir McChrystal að honum finnist sem sendiherra Bandaríkjanna í Kabúl, Karl Eikenberry, hafi svikið sig. Þá eru höfð eftir aðstoðarmönnum McChrystal ýmis háðsyrði um varaforsetann Joe Biden og jafnframt fullyrt að McChrystal hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með Obama forseta.

Haft er eftir McChrystal að hann „nenni ekki einu sinni að opna" tölvupósta frá Richard Holbrooke, sérstökum erindreka Bandaríkjastjórnar í Afganistan og að öryggisráðgjafinn James Jones sé „trúður fastur í árinu 1985".

Obama sagði í gær að hann vildi ræða við herforingjann í eigin persónu áður en hann tæki ákvörðun um framhaldið. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, segir að forsetinn sé reiður og að McChrystal hafi gert alvarleg mistök.

Barack Obama.

Barack Obama. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.

Bud er orðinn að annars stigs stormi

16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »
Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Nissan Patrol árg. 2000 til sölu
NISSAN PATROL 2,8 L. TD ELEGANCE '35 breyttur, árg. 2000 til sölu. Verð 1.350, e...
N.P. ÞJÓNUSTA
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-, eftirlits- og gæslustörfum. Hafið samband í...
Ný heilsársdekk Cooper M+s Sport fyrir 19" felgur
Er með fjögur heilsársdekk fyrir 19" felgur, Cooper M+s Sport Xl 255/50R19, ná...
TILBOÐ Á DEKKJUM
Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 135 R 13 kr. 5900. 165 R 13 kr. ...
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Sýslumaðruinn á ísafirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....