Leiðtogi sjía-múslima í Líbanon látinn
Leiðtogi sjía-múslíma í Líbanon, sjeik Mohammed Hussein Fadlallah, lést í dag, 75 ára að aldri. Fadlallah var talinn andlegur leiðtogi Hisbollah hreyfingarinnar frá stofnun hennar árið 1982. Hann var hins vegar skilgreindur sem hryðjuverkamaður af stjórnvöldum í Bandaríkjunum.
Fadlallah lést á sjúkrahúsi í Beirút og var banamein hans innvortis blæðingar, samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar. Var hann lagður inn á sjúkrahús á föstudag vegna blæðinganna, samkvæmt BBC.
Á vef BBC kemur fram að þrátt fyrir að hann hafi verið skilgreindur sem hryðjuverkamaður af Bandaríkjunum þá naut hann mikils stuðnings meðal sjía-múslima. Hann er einn þeirra sem stóð á bak við íslömsku byltinguna í Íran árið 1979. Þrátt fyrir það var hann þekktur fyrir nútímaleg viðhorf meðal fylgismanna sinna. Til að mynda fyrir viðhorf sín gagnvart konum í íslömsku samfélagi. Hann var eindreginn andstæðingur svokallaðra sæmdarmorða, þar sem karlmenn myrða konur í fjölskyldunni vegna gruns um að hafa átt ástarsamband við karla utan hjónabands.
Í júní í fyrra, þegar Frakkar deildu um hvort banna ætti búrkur, ásakaði Fadlallah forseta Frakklands, Nicolas Sarkozy, um að banna konum að velja sér sjálfar föt.
Hann var einnig á móti heilögu stríði, jihad, Osama bin Laden og talibana í Afganistan.
Fadlullah fæddist í Írak árið 1935 í hinni helgu borg Najaf en fylgismenn hans er að finna í heimalandi hans, Líbanon, víða í Mið-Asíu og við Persaflóa, samkvæmt frétt Reuters.
Fadlullah var ásamt Hassan Nasrallah, leiðtoga Hisbollah, settur á svartan lista Bandaríkjamanna, yfir sérstaklega hættulega hryðjuverkamenn árið 1995. Var það forseti Bandaríkjanna á þessum tíma, Bill Clinton, sem ritaði undir listann. Á níunda áratugnum þegar borgarastríðið í Líbanon stóð sem hæst, héldu bandarískir fjölmiðlar því fram að Fadlallah stæði á bak við gíslatöku á bandarískum ríkisborgurum.
AFP fréttastofan segir að á sama tíma hafi aðrir fjölmiðar sagt að hann væri milligöngumaður í gísladeilunni en hvert hlutverk hans var hefur aldrei verið gefið upp.
Klerkurinn lifði af nokkrur banatilræði. Meðal annars sprengjutilræði í Beirút þann 8. mars 1985 sem kostaði 80 óbreytta borgara lífið.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Fjögur börn létust í sprengjuárás í Írak
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 3. september 2010, Erlent Mannskæð sprengjuárás
- Miðvikudagur, 13. júlí 2011, Erlent 21 látinn í Mumbai
- Fimmtudagur, 17. júní 2010, Erlent Aukin stríðshætta í Miðausturlöndum
- Mánudagur, 7. september 2009, Erlent Kennedy sækist ekki eftir þingsæti frænda síns
- Mánudagur, 2. maí 2011, Erlent Hryðjuverkamaðurinn sem breytti heiminum
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































