Amiri segist hafa verið pyntaður
Íranski vísindamaðurinn Shahram Amiri, sem hefur haldið því fram að bandaríska leyniþjónustan hafi rænt sér, segist hafa sætt pyntingum af hálfu Bandaríkjamanna.
Amiri neitar jafnframt að tengjast kjarnorkuáætlun Írans, að því er segir á veg breska útvarpsins. Hann skaut upp kollinum í sendiráði Pakistans fyrr í þessari viku eftir að hafa horfið fyrir um ári. Hann fór fram á það að vera fluttur aftur til Írans. Það hefur verið gert og er hann nú staddur í Teheran.
Bandaríkin neita ásökunum Amiri og segja að hann hafi komið til Bandaríkjanna af fúsum og frjálsum vilja.
Amiri fékk höfðinglegar móttökur frá syni sínum, eiginkonu og fjölskyldu sinni þegar hann lenti á alþjóðaflugvellinum í Teheran snemma í dag. Hassan Qashqavi, aðstoðarutanríkisráðherra Írans, tók einnig á móti vísindamanninum.
Á blaðamannafundi í Teheran ítrekaði Amiri fyrri ásakanir um að sér hefði verið rænt af liðsmönnum CIA þegar hann var í pílagrímsför í borginni Medina í Sádi-Arabíu.
Hann segist hafa verið beittur miklum þrýstingi við yfirheyrslur, en farið hafi verið fram á að hann myndi starfa með bandarískum yfirvöldum.
„Ég var beittur miklum andlegum og líkamlegum pyntingum,“ segir Amiri og bætir við að ísraelskir leyniþjónustustarfsmenn hafi verið viðstaddir yfirheyrslunar. Þá segir hann að CIA hafi boðið sér 50 milljónir dala til að vera áfram í Bandaríkjunum.
„Bandaríkjamennirnir vildu fá mig til að segja að ég hefði flúið til Bandaríkjanna af fúsum og frjálsum vilja, og nota mig til að ljóstra upp um ósannar upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írans. Með guðs vilja tókst mér að standa þetta af mér.“
Amiri hefur ekki lagt fram neinar sannanir, en hann segir að þær muni líta dagsins ljós.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Erlent Kjarnorkuvísindamaður á heimleið
- Þriðjudagur, 13. júlí 2010, Erlent Íranskur vísindamaður kemur í leitirnar
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Erlent Vísindamaður sagður hafa flúið til Bandaríkjanna
- Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, Erlent Bresk yfirvöld tapa pyntingamáli
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Erlent Hyggjast sleppa einum göngumanni af þremur
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































