Svartsýni í loftslagsmálum

Væntingum er stillt í hóf fyrir loftslagsráðstefnuna í Mexíkó í haust og gera umhverfisráðherrar Indlands, Suður-Afríku, Brasilíu og Kína sér litlar vonir um að hún muni skila áþreifanlegum árangri.

Vísa ráðherrarnir til þess að þróuð ríki á borð við Bandaríkin hafi lítið dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Ráðstefnan fer fram í Cancun í Mexíkó dagana 29. nóvember til 10. desember en hún fór sem kunnugt er fram í Kaupmannahöfn í desember í fyrra.

Það styttist því í næstu ráðstefnu en af því tilefni ræddi Reuters-fréttastofan við umhverfisráðherra áðurnefndra ríkja á ráðstefnu í Rio de Janeiro í Brasilíu í dag.

Jairam Ramesh, umhverfisráðherra Indlands, var berorður í samtali við Reuters-fréttastofuna og sagði að þróuðu ríkin hefðu ekki staðið við það loforð sitt á Kaupmannahafnarráðstefnunni að styrkja þróunarlöndin fjárhagslega til að ná fram losunarmarkmiðum.

Vitna ummælin um áhrif fjármálakreppunnar á aðgerðir í loftslagsmálum sem segja má að hafi fallið algerlega í skuggann af baráttunni við atvinnuleysi og niðursveiflu í hagkerfunum.

Buyelwa Sonjica, umhverfisráðherra Suður-Afríku, er einnig svartsýnn og vísar til þess að töf hafi orðið á samþykkt Bandaríkjaþings á nýrri löggjöf í loftslagsmálum.

Þessi töf þýddi að afstaða þingsins myndi ekki liggja fyrir áður en ríki heims funda að nýju í Mexíkó. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert