Þorpsbúar skelfingu lostnir
Íbúar í franska bænum Villers-au-Tertre eru skelfingu lostnir vegna frétta um, að átta barnslík hafi fundist í tveimur húsum og húsagarði í bænum. Hjón á fimmtugsaldri hafa verið handtekin en þau hafa búið í Villers-au-Tertre í að minnsta kosti 15 ár og maðurinn var nýlega kjörinn í bæjarráðið.
„Ég er enn agndofa," sagði Daniel Collignon, fyrrverandi bæjarstjóri Villers-au-Tertre, þar sem um 700 manns búa.
Nágrannar hjónanna lýstu einnig mikilli undrun. „Þau eru venjulegt fólk sem gegndi mikilvægu hlutverki í samfélaginu," sagði einn nágranninn. „Þetta er ótrúlegt."
Maðurinn vann við byggingarvinnu og konan var aðstoðarmaður á hjúkrunarheimili. Þau eiga tvær uppkomnar dætur og barnabörn, að sögn eins íbúans. Ein unglingsstúlka sagði, að dætur hjónanna væru vingjarnlegar og að móðirin væri einföld og þögul kona, sem gæti ekki gert flugu mein.
Málið kom upp þegar nýir eigendur húss í bænum hringdu á lögreglu á laugardag og sögðust hafa fundið beinagrindur af börnum grafnar í garðinum. Húsið var áður í eigu foreldra konunnar, sem síðan var handtekin.
Lögregla hefur fundið tvö barnslík í garðinum. Lögregla handtók síðan hjónin, sem búa í húsi í um kílómetra fjarlægð frá húsinu þar sem fyrstu líkin fundust. Þar fundust sex lík til viðbótar. Öll voru þau af nýfæddum börnum, vafin í plast.
Franska útvarpsstöðin RTL segir, að konan hafi viðurkennt fyrir lögreglu að hafa orðið börnunum að bana. Þá hafi hún sagt, að hún hafi myrt fleiri börn eftir fæðingu en þau átta sem nú hafa fundist.
Mál af þessu tagi hafa áður komið upp í Frakklandi á síðustu áratugum. Í fyrra var 41 árs gömul kona dæmd í 8 ára fangelsi fyrir að verða þremur börnum að bana.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. júlí 2010, Erlent Átta barnslík fundust í húsi
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Erlent Barnslík fundust í ferðatöskum
- Fimmtudagur, 29. júlí 2010, Erlent Ákærð fyrir barnamorð
- Mánudagur, 6. júlí 2009, Erlent Raðmorðinginn skotinn til bana
- Fimmtudagur, 21. janúar 2010, Erlent Börnum bjargað úr rústum
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina



































