Reyna endanlega lokun í dag

Olíufyrirtækið BP ætlar í dag að hefja aðgerðir til að tryggja endanlega lokun fyrir olíulekann í Mexíkóflóa.

Verkfræðingar hyggjast reyna svokallaða sprautuprófun í dag en slík prófun átti að fara fram í gær.

Þá varð vart við vökvaleka í lokinu, sem komið var fyrir á borholunni um miðjan júlí, og þurfti viðgerðar við áður en prófunin gæti farið fram.

Í dag vonast verkfræðingarnir til að geta látið á það reyna hvort mögulegt sé að sprauta olíunni sem er í borholunni aftur niður í jörðina.

Þá munu þeir dæla sérstakri borholu„leðju“ niður í borholuna og skapa þannig þrýsting til baka svo olían hætti að þrýstast upp og skapa álag á lokið.

Heppnist þetta telur BP að þá verði endanlega búið að loka fyrir olíulekann sem er sá versti í sögunni.

Viðamiklar aðgerðir hafa staðið yfir frá því í apríl til …
Viðamiklar aðgerðir hafa staðið yfir frá því í apríl til að reyna að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert