Netanyahu: Árásin á skipalestina var lögleg
Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, sagði í dag að árás ísraelska hersins á skipalest sem flutti hjálpargögn til Gaza-strandarinnar, hefði verið lögleg og að Ísraelsríki hefði ekki brotið lög með henni.
Netanyahu ásakaði tyrknesk stjórnvöld líka um að reyna að hagnast á atvikinu.
„Ég er sannfærður um að þegar rannsóknin verður yfirstaðin, verði orðið ljóst að Ísraelsríki og IDF (varnarsveitir þess) hegðuðu sér í samræmi við alþjóðalög,” sagði Netanyahu við Tirkel-rannsóknarnefndina, þegar hann hóf vitnisburð sinn um árásina. „Ég tel að smáatriðin muni skýrast og að þið munuð komast að rót sannleikans.”
Hann hóf vitnisburð sinn á því að lýsa stefnu Ísraela gagnvart Hamas og hugmyndunum að baki siglingabanninu. Hann sagði að Tyrkir hefðu ekkert gert til að koma í veg fyrir að skipalestin bryti bannið, jafnvel þótt þau hefðu gert sér grein fyrir því að það myndi enda með átökum.
„Þrátt fyrir diplómatískar tilraunir okkar gerðu tyrknesk stjórnvöld ekkert” til að stöðva skipalestina, sem var á vegum “hinna róttæku tyrknesku samtaka IHH, sem styðja Hamas,” sagði Netanyahu. ,,Tyrkir álitu það ekki andstætt hagsmunum sínum að til átaka kæmi á milli tyrkneskra aðgerðasinna og Ísraela.”
Hann kvaðst hafa skipað hermönnunum að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að komast hjá því að skaða nokkurn mann, um leið og þeir reyndu að hindra för skipanna til Gaza. Hann ítrekaði einnig þá afstöðu Ísraela að ekki sé verið að brjóta á mannréttindum á Gaza.
„Það er ekkert svelti á Gaza,” sagði hann.
Rannsóknarnefndin gerði svo hlé um miðjan morgun en eftir það fór yfirheyrslan fram fyrir luktum dyrum. Netanyahu er sá fyrsti af þremur æðstu embættismönnum ríkisins sem mun eiðsvarinn bera vitni um atvikið sem varð 31. maí síðastliðinn, þegar sérsveitarmenn réðust um borð í skipalestina. Þá féllu níu aðgerðasinnar og margir fleiri særðust.
Bloggað um fréttina
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Til skammar.....!!!!! -
Guðjón Sigþór Jensson Öfgar eiga hvergi að líðast -
Sigurður Haraldsson Kemur ekki á óvart! -
Arngrímur Stefánsson Hafnarbannið mistök.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. maí 2010, Erlent Netanyahu lýsir stuðningi við herinn
- Þriðjudagur, 10. ágúst 2010, Erlent Vilja ekki að hermenn verði yfirheyrðir
- Sunnudagur, 13. júní 2010, Erlent Ísraelar taka herkvína við Gaza til skoðunar
- Miðvikudagur, 4. maí 2011, Erlent Palestínumenn grafa stríðsöxina
- Fimmtudagur, 8. september 2011, Erlent Skipin fá vernd
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































