Vilja minni framlög á móti beinum sköttum
Janusz Lewandowski, yfirmaður fjárlagagerðar hjá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, reynir enn að ná fram beinum sköttum innan ESB, þar sem borgarar aðildarríkjanna greiði beint til sambandsins. Hann er nú að reyna að semja um róttækar breytingar á tekjustofnum sambandsins fyrir næsta sex ára fjárlagatímabil, frá 2014 til 2020.
Vegna samdráttar er nú gat í fjárlögum ESB sem menn vilja nú fylla með því að leggja á beina skatta. Þar sem aðildarríkin hafa almennt ekki tekið vel í þetta hefur hann lagt til að framlög ríkjanna til sambandsins verði minnkuð um 30-40 milljarða evra á móti.
Þá hefur hann sett fram ýmsar mögulegar leiðir, til þess að halda árlegum tekjum sambandsins í kringum 140 milljarða evra, eða rétt um 1% af vergri landsframleiðslu aðildarríkjanna samanlagt. Nú er verið að fínpússa tillögurnar sem lagðar verða fyrir ríkisstjórnir landanna og Evrópuþingið í næsta mánuði.
Lewandowski heldur því fram að beinir skattar séu ,,möguleiki”. Bretar og Frakkar hafa hvorir um sig lýst yfir andstöðu sinni við þau áform og Pierre Lellouche, Evrópumálaráðherra Frakka sagði að áformin væru sérstaklega illa tímasett og myndu fela í sér ,,meiriháttar framsal á fullveldi.”
Aðrir eru jákvæðari. Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, segir að hugmyndin ætti að koma til skoðunar ef hún styrki Evrópusambandið. Melchior Wathelet, fjármálaráðherra Belgíu talar fyrir því að núverandi leiðir sem farnar eru í því að fjármagna ESB séu óæskilegar.
Lewandowski sagði við PAP fréttastofuna í Póllandi, heimalandi sínu, í vikunni að fjármálaráðherrar ríkjanna væru að segja við hann: „Haltu áfram að leita. Kannski finnurðu eitthvað sem gerir okkur kleift að minnka framlögin til ESB.” Ef það tækist ekki vöruðu ráðherrarnir við því að skattaáformin gætu strandað á löndum eins og Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 10. ágúst 2010, Erlent Á móti beinni skattlagningu ESB
- Mánudagur, 8. ágúst 2011, Erlent Von á yfirlýsingu frá Obama
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Erlent 123 milljarða evra fjárlög ESB
- Miðvikudagur, 20. apríl 2011, Erlent ESB vill að framlög aukist um 4,9%
- Þriðjudagur, 6. september 2011, Erlent ESB vill hafa áhrif á eftirlit
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...



































