Hnífjafnt samkvæmt skoðanakönnunum í Ástralíu

Julia Gillard stækka

Julia Gillard Reuters

Útlit er fyrir spennandi kosningar í Ástralíu um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir sem birtar hafa verið. Í skoðanakönnun sem birt var í dag var fylgi stjórnarflokkanna og stjórnarandstöðunnar nánast það sama.

Forsætisráðherra Ástralíu, Julia Gillard formaður Verkamannaflokksins, á í harðri baráttu við Tony Abbott formann Íhaldsflokksins og er afar mjótt á munum. Telja ýmsir stjórnmálaskýrendur að í fyrsta skipti í sjötíu ár sé jafnvel möguleiki á að minnihlutastjórn muni ráða ríkjum á þingi landsins.

Samkvæmt könnun Roy Morgan fengi Verkamannaflokkurinn og þeir flokkar sem standa við bakið á honum í ríkisstjórn, 51% atkvæða á meðan Frjálslyndisflokkurinn og Þjóðarflokkurinn, sem eru í stjórnarandstöðu 49% atkvæða.

Samkvæmt fréttaskýringu sem birtist í Morgunblaðinu í sumar notast Ástralar við forgangskerfi við þingkosningar þar sem annar og þriðji valkostur getur endað sem atkvæði, fari svo að fyrsti valkostur í flokkakjöri nái ekki meirihluta í kjördæminu.

Gillard sór í júní embættiseið sem forsætisráðherra Ástralíu, fyrst kvenna í nútíma stjórnmálasögu Ástralíu sem hófst árið 1901. Hún fór með sigur af hólmi gegn Kevin Rudd, sitjandi forsætisráðherra frá 2007 í óvæntum formannskosningum á flokksþingi ástralska Verkamannaflokksins fyrr í mánuðinum.

Gillard er lögfræðingur að mennt en 29 ára gömul varð hún fyrsta konan sem varð meðeigandi í lögfræðifyrirtækinu Slater & Gordon. Þingferill Gillard hófst 1998 en 9 árum síðar varð hún fyrst kvenna aðstoðarforsætisráðherra. 

Tony Abbott

Tony Abbott R

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »
Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.

Bud er orðinn að annars stigs stormi

16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vw Golf 1.6 Highline 2003
VW Golf árg 2003 ekinn aðeins 112.000 km. búið er að skipta um tímareim. Ver...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
Lagersalan Kauptúni 3 Garðabæ
Birkiplöntur með hnaus verð frá 2000 kr stk. Opið virka daga kl.13-18 , laugard....
Mongoose Sycamore 26" fjallahjól
Stórgott óslitið 12 ára gamalt hjól til sölu; https://bland.is/messageboard/mes...
 
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...