Svíar rannsaka áhrif flensubóluefnis

stækka

CHRIS WATTIE

Sænsk stjórnvöld ákváðu í dag að hefja rannsókn á því, hvort svínaflensubóluefni frá breska lyfjaframleiðandanum GlaxoSmithKline kunni að hafa valdið svonefndri drómasýki í unglingum. Bóluefni frá þessum framleiðanda var einnig notað hér á landi.

Drómasýki er taugasjúkdómur sem veldur margskonar svefntruflunum. Sænska lyfjastofnunin segist í yfirlýsingu hafa fengið sex tilkynningar frá  heilbrigðisstarfsmönnum þar sem grunur leikur á að bólusetning með Pandemrix bóluefni hafi leitt til drómasýki.  Muni stofnunin láta rannsaka og meta hvort hugsanlega séu tengsl þarna á milli.

Um er að ræða börn á aldrinum 12-16, sem fengu sjúkdómseinkenni sem minna á drómasýki, 1-2 mánuðum eftir að þau voru bólusett við svínaflensu á síðasta ári. Sænska lyfjastofnunin segist vera í sambandi við aðildarríki Evrópusambandsins til að leita upplýsinga um hvort svipuð tilfelli hafi orðið þar.  

Í Finnlandi er einnig verið að rannsaka hvort tengsl kunni að vera milli bólusetningar gegn svínaflensu og drómasýki en slíkum tilfellum fjölgaði umtalsvert hjá börnum í vor. Búist er við að fyrstu niðurstöður liggi fyrir í lok ársins.

Um 30 milljónir manna voru bólusettir við svínaflensu með Pandemrix. Svíar keyptu 18 milljónir skammta sem átti að nægja til að bólusetja alla Svía, 9,3 milljónir talsins, tvívegis.  

2,5 milljónir Finna voru bólusettir við flensunni. Um 750 tilkynntu um aukaverkanir, svo sem hita, höfuðverk og hósta, og einnig var eitt tilfelli drómasýki tengt bólusetningunni.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »
Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.

Bud er orðinn að annars stigs stormi

16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Tafir á flugi í Portúgal

Flugumferðarstjórar að störfum
10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Íbúð til leigu á Selfossi
Tveggja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri til leigu á Selfossi. Laus frá 1. ...
Barnabílstóll Maxi Cosi
Tveggja ára gamall vel með farinn Maxi Cosi barnabílstóll. Selst á 10.000 kr. Áh...
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
 
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...