Ekki lengur eftirlýstur

Stofnandi WikiLeaks, hinn ástralski Julian Assange, er ekki lengur grunaður um nauðgun í Svíþjóð, samkvæmt upplýsingum saksóknara. Handtökuskipun hefur því verið dregin til baka.

Assange er í Svíþjóð. Hann var grunaður um tvo glæpi, meðal annars nauðgun. Saksóknari vildi ekki gefa uppi hver hinn glæpurinn væri né hvort gefin hefði verið út alþjóðleg handtökuskipun vegna málsins.

Saksóknari vildi í dag ekki veita frekari upplýsingar um málið.
Stofnandi Wikileaks, Julian Assange.
Stofnandi Wikileaks, Julian Assange. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert