Danir senda ekki flugvélar til Afganistan
Dönsk stjórnvöld hafa hafnað ósk NATO um að senda F-16 orrustuflugvélar til Afganistans. Lene Espersen, utanríkisráðherra Dana, sagði eftir fund með utanríkismálanefnd danska þingsins í dag, að Danir séu sú þjóð, sem hafi lagt hlutfallslega einna mest að mörkum til hernaðarins í Afganistan.
„Þess vegna höfnuðum við ósk NATO," sagði Espersen. NATO hefur einnig farið fram á það við önnur aðildarríki að þau leggi til herflugvélar.
Espersen sagði, að á fundi nefndarinnar hefði komið fram ríkur vilji til að draga úr umsvifum Dana í Afganistan vegna þess að þrýst væri á stjórnvöld að draga úr útgjöldum til varnarmála og Danir væru ekki skuldbundnir til að auka umsvif sín.
Sagði Espersen að Danir gætu verið stoltir af hlutverki sínu í Afganistan og önnur ríki yrðu að mæta kröfum NATO.
Nú eru um 750 danskir hermenn í Afganistan undir merkjum ISAF herliðs NATO. Danirnir eru aðallega í Helmand héraði þar sem talibanar hafa verið umsvifamiklir. Alls hafa 34 danskir hermenn látið lífið í átökum í Afganistan og tveir til viðbótar af öðrum orsökum.
Dönsk stjórnvöld vonast til að geta flutt alla hermennina frá Afganistan fyrir árið 2015.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 22. mars 2010, Erlent Danir draga saman seglin í Afganistan
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Erlent Danir verða áfram í Líbíu
- Föstudagur, 18. mars 2011, Erlent Norðmenn taka þátt í aðgerðum
- Þriðjudagur, 27. júlí 2010, Erlent Viðræðum ljúki í formennskutíð Dana
- Þriðjudagur, 20. júlí 2010, Erlent Espersen komst aldrei til Kabúl
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































