Hundruð vísað úr landi í dag
Frönsk stjórnvöld vísa hundruð sígauna úr landi í dag og voru þeir fluttir með langferðabílum á Charles de Gaulle flugvöllinn í París í morgun. Alls verða 283 sígaunar sendir til Rúmeníu í dag og verður flogið með þá frá París og Lyon.
Undanfarið hafa búðir sígauna og annarra flakkara verið jafnaðar við jörðu í Frakklandi og þeir sem hafa gerst brotlegir við lög sendir úr landi. Jafnframt hefur sígaunum sem fara af fúsum og frjálsum vilja verið greitt fyrir að yfirgefa landið.
Hefur brottvísun þeirra vakið mikla athygli víða um heim og hafa frönsk stjórnvöld verið sökuð um útlendingahatur, meðal annars af kaþólsku kirkjunni og stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem berst gegn kynþáttahatri.
Í gær birtist grein eftir fjárfestinn George Soros í Morgunblaðinu þar sem hann segir að sígaunar hafi verið ofsóttir um alla Evrópu svo öldum skiptir. „Nú sæta þeir mismunun, sem á ekki sinn líka í Evrópu frá síðari heimsstyrjöld: hópflutningar og brottrekstur karla, kvenna og barna frá nokkrum evrópskum lýðræðisríkjum á þeirri forsendu að þau séu ógn við lög og reglu."
Soros segir að það sé lögmætt viðfangsefni stjórnvalda að stöðva glæpsamlega hegðun. En brottrekstur ríkisborgara í Evrópusambandinu á grundvelli uppruna sem notaður er til marks um glæpsamlega hegðun er brot á tilskipunum ESB um mismunun á grundvelli kynþáttar og réttinn til að fara frjáls ferða sinna frá einu aðildarríki ESB til annars.
Er dómsmálaarmur framkvæmdastjórnar ESB nú að rannsaka hvort frönsk stjórnvöld hafi gengið of langt og brotið reglur ESB varðandi frjálst flæði á milli landa.
Ráðherra innflytjendamála, Eric Besson, sagði í gær að 8 þúsund sígaunar hafi yfirgefið landið það sem af er ári, flestir af fúsum og frjálsum vilja.
Innanríkisráðherra Frakklands, Brice Hortefeux, segir að tölur bendi til þess að afbrotum sígauna í Frakklandi hafi fjölgað um 138% á milli ára.
þeir Besson og Hortefeux ræddu í gær við tvo aðstoðarráðherra Rúmeníu í París í gær. Eftir fundinn sendu ráðherrarnir fjórir frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að samstarf ríkjanna varðandi málefni sígauna.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- „Cameron stalst aðeins út fyrir“
- Tollurinn með milljarðamálverk í sinni vörslu
- DNA-próf sannar uppruna þorsks
- Kínverskar eftirlíkingar í bandaríska hernum
- Mannskætt lestarslys
- Einkarekin geimflaug á loft
- Kunnugleg andlit við kjötkatlana
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Erlent Sígaunar sendir úr landi
- Föstudagur, 20. ágúst 2010, Erlent Páfagarður gagnrýnir aðgerðir gegn sígaunum
- Laugardagur, 4. september 2010, Erlent Víðtæk mótmæli boðuð í Frakklandi
- Föstudagur, 27. ágúst 2010, Erlent SÞ biður Frakka að hætta brottflutningum sígauna
- Miðvikudagur, 22. september 2010, Erlent Biður Sarkozy um að hætta senda sígauna úr landi
-
Humperdinck og ömmurnar eru elst
-
Kosning um viðræður óvanaleg
-
Helsti óttinn að týna tölvunni
-
Lady Gaga heldur sínu striki
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
-
„Eru andstæðingarnir að fá víti á KR-vellinum?“
-
Baldur: Þetta var sex stiga leikur
-
Hjálpræðisherinn í Mjóddina




































