Vændiskonur fagna sigri
Vændiskonur í Ontario í Kanada fögnuðu sigri í dómsmáli í gær en þá úrskurðaði dómari að bann við rekstri vændishúsa í ríkinu skyldi afnumið. Voru rök vændiskvennanna þau að bannið yki áhættu þeirra í starfi með því að þvinga starfssystur þeirra til að vinna við hættuleg skilyrði.
Haft er eftir einni vændiskonunni á vef breska útvarpsins, BBC, að úrskurðurinn frelsi vændiskonur undan þeirri ánauð sem bannið hafi verið.
Segir þar einnig að ríkisstjórnin í Kanada kunni að áfrýja dómnum af ótta við að önnur sambandsríki í Kanada kunni að fylgja í kjölfarið.
Athygli vekur að dómarinn, Susan Himel , er kona en í rökstuðningi hennar segir að bann við rekstri vændishúsa og útgerð vændis brjóti í bága við stjórnarskrárbundin rétt einstaklinga til frelsis, athafna og öryggis.
Dómsniðurstaðan er rökstudd í 131 bls. skýrslu sem er aðgengileg hér en á blaðsíðu 24 kemur fram að sönnunargögnum hafi verið aflað á tveggja og hálfs árs tímabili og grein gerð fyrir þeim á alls 25.000 síðum í 88 bindum.
Öruggara á vændishúsum
Er ein meginniðurstaðan sú að vændiskonur hvaðanæva að úr Kanada telja öruggara að stunda vændi innandyra en að selja blíðu sína með götuvændi. Á hinn bóginn geti slæm stjórnun dregið úr öryggi vændis innandyra.
Vændiskonurnar bentu einnig á að með því að getað skipulagt þjónustu sína, viðskiptavini, stað og stund, geti þær aukið öryggi í starfi. Með líku lagi sé aðstoð bílstjóra sem fylgist með hvort þær skili sér frá viðskiptavini til þess fallin að auka öryggi þeirra.
Tekið er fram í skýrslunni að engin ein staðalmynd af vændiskonu dugi til að lýsa vændiskonum í Kanada, enda sé bakgrunnur þeirra sem leggja fyrir sig vændi afar ólíkur. Ástæður þess að konur leggi fyrir sig vændi séu jafn ólíkar og þær séu margar.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Vændið og forsjárhyggjufólkið -
Sigrún Einars Sammála! -
Frikkinn Casa del putas Senior
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































